Réttur


Réttur - 01.08.1950, Page 5

Réttur - 01.08.1950, Page 5
RÉTTUR 165 Jóhannes úr Kötlum: / „YERTÍÐ NORÐLINGA" [Kvæðið um hefndina eftir Jón Arason og sonu hans, hið eina, sem ort hefur verið, birtist hér úr „Hrímhvíta móðir“]. I. - „In manus tuas —“ harmblíð hljóðar hin hinzta kveðja vökumanns. Og gullnum tárum sólin sáldrar á silfurhvita lokka hans. — Á stokknum hetjuhöfuð liggur, og höggin falla: eitt og tvö og þrjú og fjögur, fimm og sex og — nú fýkur það af bolnum — sjö! Og herðalotinn hærukollur í helgri skikkju fórnarblóðs að brjósti íslands hljóður hnígur, sem hinzta stef síns eigin ljóðs. Og enginn bjarmi af biskupsskrúða né bagli og mítri framar sést, en aðeins þessi glaði geisli, sem Grýtu-snáðann vermdi bezt. Og það er hann, sá glaði geisli, — hin goðumborna frelsisþrá — sem allir böðlar ætla að myrða, — en eðli ljóssins hindrar þá: Þótt einn sé nár, mun annar fæðast í öðru koti þessa lands, og geislans ljómur loga af nýju í litlum, bláum augum hans.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.