Réttur - 01.08.1950, Qupperneq 13
RÉTTUR
173
í umboði föður síns, 1528. Það haust lézt Hrafn lögmaður
Brandsson, tengdasonur Jóns biskups, og komu Norðlend-
ingar sér saman um það á næsta alþingi að kjósa Ara í
hans stað, þótt ungur væri. Úr öðrum landshlutum kom
hörð mótstaða, og merkur sýslumaður annar var í kjöri.
En Jón biskup mun hafa stutt son sinn í kyrrþey, unz
hann náði embættinu, 1530, e. t. v. með brögðum. Ari
þótti brátt með skynsömustu lögmönnum, sem verið höfðu,
réttdæmur, sanngjarn við alþýðu, „veitti jafnan virðum anz,
þó væru ei tignarmenn". Ari kvæntist 1530 Halldóru Þor-
leifsdóttur á Möðruvöllum, auðugri konu, og eru stórættir
komnar af dætrum þeirra. Halldóra varð eigi gömul, og
harmaði Ari hana mjög. Þegar siðskiptadeilur hörðnuðu
varð Ari að sleppa lögmannsembætti, og var það nokkuð
kennt Dönum.
Ari var íþróttamaður og hraustmenni, óvæginn, ef hann
brá skapi, fésýslumaður og fengsæll á jarðeignir, en gat
verið manna örlátastur. Hann þótti bera flest þau ein-
kenni, sem prýða máttu höfðingja, líkt og faðir hans, en var
hófsamari í deilum.
Birni Jónssyni var lítil hófsemi gefin, og lýsa honum
sumir sagnaritarar sem ofstopamanni, en vinir hans töldu
fáa menn höfðinglegri (kvæði Ólafs Tómassonar). Má
vera, að hvorir tveggja segi nokkuð satt. Prestur eða
messudjákn var hann orðinn 1533, í mesta lagi tvítugur að
aldri, og festi sér þá fylgikonu með eins konar hjúskapar-
samningi, því prestar máttu eigi kvænast öðruvísi. Það
var Steinunn Jónsdóttir frá Svalbarði, en bræður hennar
fimm urðu nafnkenndir menn á síðari hluta aldarinnar
(Staðarhóls-Páll, Magnús prúði, Jón lögmaður). Melstað-
arprestakall í Miðfirði fékk sr. Björn 1534 og bjó þar til
dauða. Þau Steinunn áttu sjö börn, sem ættir eru frá komn-
ar og margt atkvæðamanna.
Séra Bjöm á Melstað var jarðabraskari með afbrigðum