Réttur


Réttur - 01.08.1950, Page 44

Réttur - 01.08.1950, Page 44
204 RÉTTUR lendi jarðarinnar í viðjum. Hið eilífa frost mundi ekki framar vera eilíft. En jafnvel þessi innri jarðhiti eru smámunir samanborið við hið ægilega orkumagn, sem falið er í kjörnum frumeindanna, sem jörðin er gerð af. Kjarnorkan verður að þjóna friðsamlegum markmiðum. Þegar 1 gramm af úraníum—235 klofnar myndast eins mikil orka og fæst með því að brenna 3 tonnum af kolum. Eftir því sem prófessor Joliot-Curie segir okkur mundi eitt vagnhlass af kjarnorku eldsneyti gefa tvisvar sinnum meiri orku en allar aflstöðvar Frakklands framleiða á einu ári. Mikla tæknilega örðugleika verður að yfirvinna áður en hægt er að reka flugvéla- og bílahreyfla með kjarnorku. Eins og mál- um er komið nú mundi þurfa tugi tonna af járnbentri steinsteypu í hlífðarveggi til að vernda ökumanninn eða flugmanninn fyrir áhrifum skaðlegra geisla og geislavirkra agna. Hinsvegar mætti nú þegar eða í náinni framtíð byggja á ýmsum stöðum á jörðinni stórkostleg raforkuver sem gengju fyrir kjarnorkueldsneyti Orkustöðvar af þessu tagi kæmu í góðar þarfir á stöðum þar sem ekki eru kol né vatnsafl. Kjarnorkan mun verða til mikillar hjálpar við iðnvirkjun „auðu blettanna" á iðnaðarkortinu. Þessir „blettir" eru hinar hrjóst ugu víðáttur, sem enn eru strjálbýlar og án járnbrauta. En það er náttúrlega auðveldara að flytja tonn af úraníum með flugvél heldur en að byggja járnbraut til að flytja milljónir tonna af kolum. Þegar tímar líða fram og fundist hafa aðferðir til að vernda menn fyrir hinum skaðlegu geislum, sem fylgja klofnun atóm- anna, mun kjarnorkuvélin koma fram og fyrst verða notuð í stórum skipum, síðan í eimreiðum, flugvélum og bifreiðum. Og hinn langþráði dagur mun einnig koma, þegar fyrsta kjarn- orkuknúna eldflaugarvélin leggur af stað' í flug til annars hnatt- ar. — í U.S.S.R. er kjarnorkan þegar orðin voldugt tæki til að breyta

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.