Réttur


Réttur - 01.08.1950, Page 68

Réttur - 01.08.1950, Page 68
228 RÉTTUR Beðið fyrir einuiu Morgunblaðið 13. sept. 1950: ,,Truman hefir farið fram á 139,8 millj. dala fjárveitingu við þingið til að gera sérstaka borg sem stjórnin getur haft aðsetur í fyrir utan Washington. Hún á að vera örugg gegn kjarnorkusprengjum. Hugmyndin er að hún verði neðan jarðar og notuð ef hætta þætti á kjarnorkustyrjöld“. Þú, sem úr skýjum miðlar mestum friði mönnum og konum, gömlum bæði og ungum, þú, sem varðst okkur óbeðinn að liði, okkur, sem velkjumst nú í raunum þungum ég fyrir mína kerlu þakka þér og þakka sérstaklega fyrir krakkagreyin, ég veit þú hefir einnig ætlað mér og öllu hyski mínu friðland hinum megin, ó, virztu að heyra vora bænarskrá þú vísi dollarþurs í neðsta iðri jarðar, þín lýsir hjálp og hjartagæska frá Hirósíma-borg og allt til Kollafjarðar, ó, mætti, herra, mærðin þessi klén þig minna á trúan þjón, sem forðum var þinn gestur, hann, þennan eina sanna Bjarna Ben, hann Bjarna litla þinn, sem flaug um árið vestur.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.