Réttur - 01.08.1950, Side 79
RÉTTUR
239
Stalin, Kurze Lebensbes-
chreibung.
Þetta er ævisaga Stalins, rit-
uð af þeim G. F. Alexandrow,
M. P. Galaktionow, W. S. Krush-
kow, M. B. Mitin, W. D. Mots-
chalow og P. N. Pospelow.
Rosa Luxemburg: Briefe
aus dem Gefángnis.
Þessi fögru bréf Rósu Luxem-
burg, rituð úr fangelsinu 1916—
17, gefa hverjum, sem les þau,
nýja hugmynd um þennan á-
gæta leiðtoga þýzks verkalýðs.
Ernst Sommer:
Revolte der Heiligen.
Þetta er skáldsaga af einhverj-
um ógnþrungnasta atburði allra
tíma: Uppreisn og hetjudauða
Gyðinganna í Getto Varsjáborgar.
Sieg des Lebens und
andere Srzáhlungen.
Þetta er úrval af smásögum og
frásögnum rússneskra rithöfunda,
að mestu úr heimsstyrjöldinni síð-
ari. Inngang að þeim hefur Fried-
rich Wolf skrifað.
Henri Claude:
Der Marshallplan.
Þetta er bók eftir franskan höf-
und, þýdd á þýzku, og fjallar um
Marshalláætlunina. Er þetta ein-
hver skilmerkilegasta gagnrýni og
rannsókn á „áætlun“ þeirri, sem
sett hefur verið fram í bókar-
formi. Höfuðkaflar bókarinnar
eru eftirfarandi:
I. Marshalláætlunin og út-
þenslustefna Bandaríkjanna.
II. Áætlun um undirokun Ev-
rópu. Þar í er m. a. skilgreint
hvernig lánveitingarnar til rík-
isstjórna Evrópu eru notaðar til
að múlbinda þær og hvernig
„áætlunin um viðreisn Evrópu“
er notuð til þess að gera iðnaðar-
lönd Evrópu að nýlendum Banda-
ríkjanna.
III. Áætlunin um eyðileggingu
Evrópu. Þar í er lýst hvernig
Marshalláætlunin er undirbúning-
ur að hernaðarfyrirætlunum
Bandaríkjanna, þar sem þau gera
skuldunauta sína, Evrópulöndin,
fyrst að vopnabúri, svo að blóð-
velli og að síðustu að kirkju-
garði.
IV. Verkfæri áætlunarinnar.
Þar er lýsing á baráttuaðferðum
amerísku auðdrottnanna, and-
kommúnismanum í Hitlersstíl og
öðrum áróðurs- og stjórnmála-að-
ferðum þeirra.
V. Ályktanir.
Bók þessi er full mjög eftirtekt-
arverða upplýsinga, sem einnig
hafa mikið gildi fyrir ísland.
Þá hefur Dietz Verlag einnig
hafið útgáfu á ritum Stalins í
þýzkri þýðingu og eru 2 fyrstu
bindin komin út og ná yfir rit
hans fram að 1913, en alls verða
þetta 16 bindi. Þá hefur og Dietz
Verlag gefið út að nýju mjög
mikið af hinum gömlu, sígildu
ritverkum marxismans, svo sem
„Das Kapital“ eftir Marx, Bréfa-
skipti Marx og Engels, mörg
rit Karl Kautskys og Frans
Mehring o. fl. o. fl.