Réttur


Réttur - 01.08.1950, Qupperneq 51

Réttur - 01.08.1950, Qupperneq 51
RÉTTUR 211 Hann dreymdi um að gera jörðina að þeim frjósama garði, sem hún vissulega getur orðið. Og í samanburði við þá framtíðarsýn fannst honum hún vera eins og eyðimörk. Spásögn hans var að þá fyrst yrði friður og regla á jörðinni þegar maðurinn vseri orð- inn herra jarðvegsins, hafsins, loftsins, veðráttunnar, jurtanna og sjálfs sín. Stórkostleg eru þau verkefni, sem mannsins bíða þegar hann hefur tekið sitt verðuga sæti sem herra jarðarinnar og sjálfs sín. Fremst þessara verkefna mun verða baráttan við sjúkdómana. Þær tvö þúsund milljónir dollara, sem fyrsta kjarnorkusprengjan kostaði hefðu nægt til að byggja og búa fullkomnum tækjum þúsund rannsóknarstofnanir til baráttu gegn berklunum, krabba- meininu og öðrum þeim skæðu sjúkdómum, sem ár hvert kosta þúsundir mannslífa. En eitt þúsund rannsóknarstofnanir eru ekki nema smámunir, hégóminn einber, samanborið við þann mikla ávinning, sem heim- inum væri að því að öll barátta mannanna með vísindin að vopni væri helguð friðsömu uppbyggingarstarfi. Baráttan gegn dauðanum mun verða mesta stríðið sem mann- kynið heyr þegar ekki er lengur stríð milli manna. Árangurinn mun verða sá að mennirnir lengja líf sitt að mun hér á þessari plánetu sem þeir munu umbreyta og fullkomna svo mannlífið verði auðugt að fegurð og gleði. Og þegar maður hugleiðir allt þetta hlýtur maður að skynja tvöfalt skýrar en áður hversu kaldranalegt og andstyggilegt er starf þeirra manna, sem þegar eru farnir að reikna út væntanlegan gróða af atómstyrjöld. Sumir skáldsagnahöfundar á vesturlöndum eru byrjaðir að draga upp mynd af þeirri martröð sem slík styrjöld mundi vera. Aðal- drættirnir í þeirri mynd sem þeir vilja sýna okkur er þannig: Jarðvegurinn hefur misst frjómagn sitt, vatnsbölin menguð sýkl- um, andrúmsloftið eitrað, málmgrýtislögin í jörðinni óvinnanleg um langan aldur vegna geislaverkunar, brunnir skógar og sviðnir akrar, hrundar borgir og fólk, sem dregur fram lífið eins og
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.