Réttur


Réttur - 01.08.1950, Side 73

Réttur - 01.08.1950, Side 73
RÉTTUR 233 verið samþykkt lög um að húsaleiga skyldi lækka. Niður- staðan varð 109 stig fyrir júlímánuð. Ef reiknað hefði ver- ið með sömu upphæð fyrir húsaleigu og áður, átti hún hins- vegar að vera um 116 stig. En af rausn sinni gaf ríkisstjórn in út bráðabirgðalög samtímis, þar sem svo er fyrir mælt að kaupgjald skuli reiknað með vísitölunni 112 stig. Nú var verkalýðssamtökunum nóg boðið, svo stjórn Al- þýðusambandsins hlaut, að taka eitthvað til bragðs. Skor- aði hún nú á verkalýðsfélögin að segja upp samningum, og forsetinn lýsti því yfir að tilgangurinn væri að fá „upp- borna“ alla þá kjararýrnun, sem gengislækkunin hefði valdið. Flest verkalýðsfélög á landinu sögðu upp samn- ingum frá 1—15. sept. Leið nú fram undir lok ágústmán- aðar. Bjuggust félögin hvert fyrir sig, sem bezt undir á- tökin, en ekkert heyrðist frá sambandsstjórn. Þá var skyndilega tilkynnt, að samningar hefðu tekist milli rík- isstjórnarinnar og stjórnar Alþýðusambandsins, á þá leið að gefin yrðu út ný bráðabirgðalög, er mæltu svo fyrir að kaupgjald skyldi reiknað með vísitölunni 115 frá 1. júlí til áramóta. Jafnframt aflýsti stjórn Alþýðusambandsins allri baráttu fyrir hærra kaupi. Þetta var 2,7% hækkun, eða rúmar tvær krónur á dag til handa verkamanni með Dagsbrúnarkjörum. En til þess að ,,fá uppborna kjaraskerðinguna af völdum gengislækk- unarinnar", svo notuð séu orð forsetans, hefði kaupið þurft að hækka að minnsta kosti um 30—40%, miðað við núverandi „grunnkaup". Ekki er að efa að þessi leikur hefur verið settur sam- eiginlega á svið. Tiltækið með útreikning vísitölunnar i júlí, hafði þann tilgang að gefa sambandsstjórn tækifæri til að „berjast“ og „vinna sigur“. Og sviðsetningin var gerð af slíkum hagleik að hægt var að vinna sigurinn (!!) með árangrinum nákvæmlega núll.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.