Réttur - 01.08.1950, Page 37
RÉTTUR
197
„kolahungri“, „járnhungri," „timburhungri", allskonar tegundum
af hungri.
í Bandaríkjunum hefur rán og rupl náttúruverðmæta vissulega
komizt á hættulegt stig. Kolalögin eru ekki hagnýtt skynsamlega,
ekki er unnið nema í beztu námunum og þær jafnvel yfirgefnar
undir eins og þær hætta að gefa háan gróða.
Sömu sögu er að segja um jarðolíuna. Hver námueigandi reynir
að dæla upp úr jörðinni eins miklu og hann kemst yfir til þess
að sem minnst verði eftir handa náunganum. Mikið af olíu fer
til spillis við vinnsluna, og olíulindir eru yfirgefnar undir eins og
afköst þeirra fara að minnka með þeim árangri að olíusvæði, sem
borgar sig að hagnýta, fer hraðminnkandi.
Samskonar ránaðferðum beita kapítalistar yfirleitt við hagnýt-
ingu annarra verðmætra jarðefna.
Gjaldþrot auðvaldsskipulagsins er útskýrt af borgaralegum
þjóðfélagsfræðingum sem gjaldþrot tækninnar og borgaralegir
hagfræðingar eru önnum kafnir við að reikna út hve langt eða
stutt sé þangað til mannkynið verður að vera án kola, olíu og
járns. í spor hagfræðinganna koma svo rithöfundarnir með vís-
indalegar skáldsögur fullar af óhugnanlegum frásögnum um
heim án ljóss, hita og véla.
En þessum mönnum ætti að vera kunnugt að hægt er að vinna
járn úr berglögum t. d. graníti, ef tæknin er á nægilega. háu
stigi. Og það eru þegar starfandi verksmiðjur sem vinna járn
úr járngrýti með lágu járnmagni. Því hærra sem stig tækniþró-
unarinnar er, þeim mun meiri verður nothæfur forði jarðarinnar
af járni, eir, sínki og öðrum málmum. Málmar munu verða fram-
leiddir úr lögum, sem nú þykir ekki gróðavænlegt að vinna.
Hér áður notuðu menn orðið „blendi" (svika málmur) yfir
málmgrýti sem þeir gátu ekki unnið málm úr. En nú eru ýmsar
tegundir af slíku málmgrýti notaðar til málmvinnslu og er þannig
ekki neinn „svikamálmur“ lengur. Leir er óþrjótandi uppspretta
fyrir alúmínium. Skorpa jarðarinnar hefur að geyma feikileg lög
af magnesíum og berillíum, sem eru málmar sem mikið verða
notaðir í framtíðinni. Áður fyrr héldu menn að saltpéturslögin