Réttur


Réttur - 01.08.1950, Side 14

Réttur - 01.08.1950, Side 14
174 RÉTTUR og talinn ágjarn, enda varð hann stórauðugur á hálfum öðrum áratug, svo sem sjá má af arfleiðsluskrá, er hann gerði ári fyrir lát sitt, til að reyna að tryggja f járhag barna sinna, ef hann kynni að farast snögglega, eins og varð. Jón biskup virðist hafa haft mikið dálæti á þessum synin- um og engan meir stutt til jarðakaupa og valda. Ljósast varð það 1550, þegar ábótatignin á Þingeyrum var laus. Þá fékk biskup Bimi ábótavaldið í hendur, án þess hann þyrfti að ganga í klaustrið sem munkur, fyrr en hann kenndi sig færan til „að gefa sig til hreinlífisreglu", eins og í skjalinu stendur. Ugglaust hafa Marteinn biskup Einarsson og hans vinir skilið það rétt, að þessi fáheyrða ábótaveiting með biðtíma eftir vild til munkvígslunnar var ekkert nema valdabrask og trappa upp í umdeilt biskups- sæti Skálholts, og skýrir það hatrið, sem þeir höfðu sér- staklega á'þessum fanganum í Skálholti um haustið. Sigurður Jónsson, sem biskup kallaði dóttur sína fyrir skort á baráttuvilja, varð fyrir tvítugt Grenjaðarstaða- klerkur í umboði eldra bróður síns, sr. Magnúsar, sem hélt staðinn, en lézt 1534. Sama ár þurfti biskup sendimann til erkibiskups í Noregi og til ýmissa erinda í Þýzkalandi. Til þess kaus hann Sigurð, þótt vandinn væri mikill, og fékk honum erindisbréf, sem duga skyldi 3 ár, ef störfin krefðu svo Iangs tíma. Menntaför var það einnig. Sigurður kom út ári síðar, kanúki Þrándheimsdómkirkju að nafnbót og með umboð handa föður sínum til að hafa landstjórn í Norð- lendingafjórðungi í nafni ríkisráðs Noregs, meðan tefðist konungsval eftir Friðrik I. látinn, og hafði sjálfur fengið erkibiskupsveitingu fyrir Grenjaðarstöðum, sem voru bezt brauð norðan lands. Sigurður fékk kvonfang ágætt sem bræður hans og sat í kyrrðum á stað sínum ævilangt, — vitmaður, en ólíkur föður sínum í skapi. 1 einni heimild er þess getið (eða getið til), að lútersk trúarsannfæring hafi valdið því, að sr. Sigurður neitaði föður sínum um alla hjálp í kirkjudeilunum 1548—50, og

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.