Réttur


Réttur - 01.08.1950, Síða 16

Réttur - 01.08.1950, Síða 16
176 RÉTTUR væru. Hér á landi þurfti kirkjan athafnamenn til forystu.' Þess vegna gerðu Norðlendingaprestar Jón Arason að bisk- upi fertugan og hafa eigi enn iðrazt þess. En áhættusöm var lífsstefna hans fyrir íhaldið, kaþólska trú og klerkastétt. Viðureign Jóns biskups við mótsnúna 'höfðingja sýnir aldrei beinlínis stéttamun með þeim og honum, því að hann tamdi sig í þeirra stétt. Eftir að hann efnaðist, hindraði ekkert hann í því að rif ja upp ætt sína til hinna mannbor- legri í landinu. En fyrstu prestskaparár hefur Jón talið sig greinilega til alþýðunnar og hin félausa fylgikona hans, sem var að vísu dóttir eins af fimmtíu krökkum Barna- Sveinbjarnar. Vægðarleysi Jóns við harðsvíruðustu full- trúa hinnar gömlu höfðingjastéttar eins og Teit Þorleifs- son hinn ríka, sem hann féfletti að fullu, gæti sýnt alþýðu- mann, sem mundi úr bemsku, hvar hann langaði til að ná sér niðri. Jón Arason gekk í valdabaráttuna á þeirri öld, sem sjálf- ræði höfðingjanna varð mest, að frátekinni Sturlungaöld. Konungsvaldið var f jarlægt, máttlítið í bili og þó hægt að láta það vinna töluvert fyrir mútur, en fátt annars. Lítið gerði til, þó að þjónar þess væru drepnir hér, Lénharður fógeti, 1502, Týli Petersen nokkru seinna, að ógleymdum biskupi dansk-þýzkum, sem Svíar ráku frá Uppsölum og drekkt var seinast í Brúará. Vegendur þeirra sluppu ó- hegndir. Af biskupum þurfti að standa bæði ótti og virð- ing, til þess að gagn yrði að þeim, og fyrirrennarar Jóns á Hólastóli höfðu beygt til hlýðni háa jafnt og lága. Sé deilt á kirkjuna fyrir að draga völd undir sig á þeirri tíð, verður að gefa hinu gaum, að enginn óvígðu höfðingj- anna gerði neitt alvarlegt til að bæta og styrkja dómsvald alþingis eða endurskipuleggja ríkisvald á nokkurn þann hátt, sem að þjóðargagni gæti orðið. 1 þeirri stétt hugsaði aldrei neinn nema um sjálfan sig. Kirkjunnar markmið voru að vísu eins eigingjörn, en að sumu leyti miklu hærra stefnt þar.

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.