Réttur


Réttur - 01.08.1950, Page 30

Réttur - 01.08.1950, Page 30
190 RÉTTUR sína að halda lífinu í eins mörgum mönnum og mögulegt er. Meö heilbrigðiseftirliti sínu, lækningum og hollustuháttum bera lækn- arnir ábyrgð á því að fleiri milljónir lifa fleiri ár í aukinni eymd.“ Það lítur því út fyrir að við getum kennt læknunum um hungr- ið — og meir að segja öllum læknum frá upphafi, eða allt frá Hippókratesi. Ef þeir létu ógert að lækna fólk, sérílagi fátækt fólk þá væri kannski ekki „of margir munnar" að seðja. Frá því að við vorum börn hafa flest okkar stöðugt verið ámynnt um að drekka ekki óhreint vatn, en herra Vogt er ekki á því að slíkt beri að forðast. Hans skoðun er að með því að koma á þeirri „byltingu í heilbrigðismálum“, sem olli því að fólk hætti að drekka vatn mengað kóleru eða taugaveiki-sýklum, hafi læknarnir framið glæp gegn mannkyninu. Þessi „hreinlætisbylting", sérstak- lega sú venja að sjóða drykkjarvatn, framkallaði „útþennslu í íbúafjölda" þannig að íbúatala heimsins tvöfaldaðist á einni öld. Kóleru hefur fyrir löngu verið útrýmt í flestum löndum. En það eru til menn, sem vilja fá drepsóttirnar aftur. Auðvitað vill ekki herra Vogt fá kóleru fyrir sig eða sitt land. En hversvegna skyldi maður ekki lofa drepsóttunum að grassera í hinum „of þéttbýlu“ löndum Asíu og Evrópu. Að því er Ameríku við kemur, þá hefur herra Vogt hugsað sér aðra aðferð til að losna við þá sem svelta, nefnilega vönun. „Það ætti að bjóða mönnum borgun — þyrfti ekki að vera há upphæð, fyrir að gangast undir þá einföldu skurðaðgerð, sem þarf til að gera þá ófrjóa." Herra Vogt ræðir þessa hugmynd sína áfram á þessa leið: „Frá sjónarmiði þjóðfélagsins væri þetta vissulega æskileg aðgerð á einstaklingum, sem búa við ævilanga fátækt og margir liverjir auk þess líkamlega og andlega vangefnir, miklu betra að borga í eitt skipti hverjum manna 50 eða 100 dali, heldur en að þurfa að sjá fyrir heilli hjörð af afkvæmum þeirra, sem auk þess mundu hafa tilhneigingar til að viðhalda slappleikanum í þjóðfélaginu." Sjálfur Göbbels hefði getað skrifað undir þessi orð. Það var einmitt álit fasistanna að vönun „úrkastsins" væri hin rétta lækning við offjölgun fólks. Og þessi mannætu-siðfræði er nú svik-

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.