Réttur


Réttur - 01.08.1950, Page 38

Réttur - 01.08.1950, Page 38
198 RÉTTUR í Chile væri eini forðinn af bundu köfnunarefni, sem af væri að taka, og hagfræðingarnir voru búnir að segja fyrir um, að þegar þessi jarðlög væru þrotin, mundi mannkynið svelta. En nú á dögum hafa menn fundið aðferð til að binda köfnunarefni loftsins í verksmiðjum og framleiða úr því áburðarefni. Með því að nota lélegri tegundir eldsneytis svosem mó og brún kol getum vér sparað forða vorn af fyrsta flokks eldsneyti eins og steinkolum og jarðolíu. Einnig efnið Sapropel, hið lífræna lag sem sest á botninn á stöðuvötnum má hagnýta sem eldsneyti og jafnvel framleiða úr því mótorbenzín með eimingu. Járn ryðgar og eyðist við tæringu. Það er þessvegna að stöðugt verður að vinna fleiri og fleiri milljónir tonna af járngrýti. En það er á okkar valdi að hægja á þessari eyðingu, hægja á hringrás járns- ins eins og við höfum hægt á hringrás vatnsins. Ryðfrítt stál er eitt dæmi þess hver afrek má vinna á þessu sviði. Auðæfi plánetu vorrar eru óþrotleg. Vér verður aðeins að læra að meta þau og vernda. Þessi auðæfi eru ekki aðeins falin í kolum, olíu og járni, heldur í öllum hlutum umhverfis oss — í sandi, leir, vatni, andrúmsloftinu, sólarljósinu. Og verðmæti þessara hluta verður því meira því betur sem vér lærum að hag- nýta þá. Ótöluleg auðæfi geta orðið að engu í höndum manna sem sóa arfi feðra sinna. En í höndum hins hagsýna getur jafnvel sandur- inn og leirinn orðið að auðæfum. Hvemig mennirnir munu umskapa jörðina. Sá tími mun koma að hvergi á jörðinni mun maður arðræna mann og ekki verða framar til orsakir þær, sem valda styrjöldum og hindra þjóðirnar í að afnema fátækt og hungur. Þegar þjóðirnar eru lausar við auðvaldsskipulagið, munu þær loks geta gefið sig að því viðfangsefni að umskapa jörðina eftir- ir vísindalegri áætlun. Með árvökrum augum hins hagsýna stjórnanda mun maðurinn líta yfir heimsálfur sínar og höf, fjallgarða og sléttur og gera

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.