Réttur - 01.08.1950, Side 41
201
RÉTTUR
i
unni verða útrýmt og sömuleiðis svefnsýkinni í Afríku og malarí-
unni á Indlandi og Suður-Ameríku. Þetta mun ekki leiða til
„offjölgunar', einfaldlega vegna þess, að hundruð þúsund ferkíló-
metra af nýju landi verður tekið til ræktunar svo að rúm verð-
ur fyrir tugi og hundruð milljóna af fólki til viðbótar.
En eftir á að hyggja, er vert að eyða svona miklu púðri á
herra Vogt...? Á bók hans hefði mátt standa, á titilblaðinu:
„skrifuð í vitfirringalandi". Það gæti heldur ekki annarsstaðar
gerst en í landi hinnar kapítalistísku vitfirringar, að slíkt verk
væri gefið út, þar sem því er haldið fram í fullri alvöru, að
skorkvikindi sem valda hættulegum sóttum eins og svefnsýki
og mýraköldu, séu einhver mesta blessun mannkynsins og að
slík dýr beri að vernda og varðveita.
Malaríuflugan mun hverfa um leið og mýrarflóarnir, þar sem
lirfur hennar lifa, eru ræstar fram.
Og þar sem skortur er á vatni munu menn gera ráðstafanir til
að hægja á rennsli þess til fljótanna, eins og þegar er gert í hin-
um þurru gresjum Sovétríkjanna Árangurinn verður rakara lofts-
lag yfir steppunum. Þurrkarnir koma ekki að sök, því jarðvegurinn
mun fá nægilegt vatn. Árnar munu ekki framar flæða yfir borgir
og akurlönd á vorin, en verða hinsvegar vatnsmeiri á sumrin, hafa
jafnara rennsli.
Þegar menn hafa náð stjórn á hringrás vatnsins, verður einnig
hægt að breyta hringrás fosfors, kalíum og kalsíums, þeirra
frumefna sem frjósemi jarðvegsins er fyrst og fremst undir komin.
Billjónir tonna af jarðvegi berast fram til sjávar á ári hverju
og glatast þannig mönnum með öllu. Vatnið kemur að vísu bráð-
lega aftur, en næringarsöltin sem það hefur þvegið burt úr jarðveg
inum og borið með sér t il sjávar eru töpuð um milljónir ára
úr þeirri hringrás efnisins sem fer fram á þurrlendinu, og koma
ekki aftur fyrr en hafið hættir að vera haf. Það verður ríkt og
sigursælt mannkyn, sem beislar hina miklu hringrás vatnsins
sem haldið er í gangi af sólinni. Og það mun verða bundinn endi
á hina heimskulegu eyðingu jarðvegsins, sem er einkennandi fyrir
auðvalds þjóðfélagið.