Réttur - 01.08.1950, Side 46
206
RÉTTUR
heldur einnig höfin. Yfirborð Miðjarðarhafsins er 30 sentímetrum
lægra en yfirborð Atlantshafsins og 50 sentímetrum lægra en yf-
irborð Svartahafsins. Með því að byggja stíflur yfir Gíbraltarsund
og Dardanella sund gætum við látið straumana um sundin inn
í Miðjarðarhafið framleiða raforku. Vatnsorkustöðin við Gíbralt-
ar mundi ein nægja til að reka dælustöðvar sem þyrftu t.il að
veita vatni á þriðja hluta Sahara eyðimerkurinnar.
Með því að byggja stíflur í sund og grafa skurði gegnum nes
og eyjar mætti breyta stefnu hafstraumanna. Hinum kalda
sjó, sem kemur frá íshafinu með Pólstraumnum mætti beina
burt frá ströndum landanna, á haf út, en beina heitu straumunum
frá hitabeltinu upp að ströndunum. Og þá munu mennirnir einnig
hafa sett til gagnlegra starfa þann hluta sólarorkunnar sem
hreyfir höfin.
Með aðstoð kjarnorkunnar munu mennirnir einnig, þegar tím-
ar líða, læra að knýja loftstraumana að láta vilja sínum. Með
því að framkalla straumhvirfla yfir íshafinu, með því að eima
sjó með atómorku, eða hita upp hið kalda heimskautaloft munu
mennirnir hafa stjórn á veðráttunni og búa til temprað loftslag
handa heilum meginlöndum.
Jörðin notar ekki ætíð orku sólarinnar á þann hátt sem menn
kjósa helzt: Það er kannski of heitt í apríl og of kalt í maí.
En maðurinn mun verða nógu sterkur til að grípa inn í rás
náttúrunnar og jafna á milli hitamagnsins sem fyrir hendi er.
Hann mun veita hita til kaldra héraða, en senda kalda loft-
strauma til svæða þar sem hitinn er of mikill.
Hann mun líta í efnahagsreikning sinn yfir efni og orku og
flytja síðan þúsundir rúmkílómetra af vatni, milljónir tonna af
efni og biljónir kaloría af hita frá einum stað til annars eftir
þörfum. Hvenær sem borgir og verksmiðjur í norðri skorir afl,
mun forði þeirra verða aukinn frá stöðvum í suðri, eða ef akr-
arnir í austri þurfa vætu, mun það verða sent þangað frá vestrinu.
Málmgrýti, kol, olía, salt og steinn mun berast í voldugum
straumi frá jarðskorpunni til sjálfvirkra verksmiðja þar sem það
verður ummyndað í þá hluti.