Réttur


Réttur - 01.08.1950, Page 55

Réttur - 01.08.1950, Page 55
RÉTTUR 215 þegnar Vesturlanda gera enn í dag. Upp úr öllum guðfræði- stælunum reis smám saman pólitísk flokkaskipting, sem einkennt hefur borgaralegt þjóðfélag. Ólga tímabilsins náði ekki til Austur-Evrópu, því að þar var gangur málanna allur annar. Rússar urðu að einbeita kröftum sínum til þess að reka af höndum sér Mongóla og Tartara og voru að koma fótum undir ríki sitt. Ivan III. stórfursti af Moskvu fékk dóttur keisarans af Miklagarði fyrir milligöngu páfa og Þýzkalandskeisara, sem ætluðu að auka áhrif sín austur þar. En rússneski stórfurstinn fór sínar eigin götur. Hann neitaði að taka við konungstitli af keisara og sagðist hvorki þurfa verndar né viðurkenningar nokkurs fursta. Austur- rómverska heimsveldið var úr sögunni, en tengdir Ivans III. við síðasta keisara þess, gerðu hann að erfingja tengda- föðursins. Nýtt heimsveldi var að myndast, og Moskva átti að verða nýr Mikligarður. Eins og kunnugt er, á siðabótin upptök sín í Þýzkalandi, en það væri rangt að álykta af því, að þar hafi trúaráhugi manna verið svo mikill, að kirkjan hefði ekki getað full- nægt fólki í því efni. Enda þótt siðbótin verði ekki skilin nema út frá þeim forsendum, sem ríktu innan þýzku ríkj- anna, þá er það ekki sönnun þess, að hún sé eitthvað af- kvæmi þýzks eða germansks anda. Þessi trúarstefna náði mestri útbreiðslu í germönskum löndum, af því að þjóð- félagshættir og stjórnarfar var þar með sérstökum hætti, sem skapaði henni góð skilyrði. Ef við viljum skilja eðli Lúterstrúarinnar sem þjóðfé- lagsfyrirbrigðis, verðum við að gera oltkur ljós nokkur at- riði, sem einkenndu Þýzkaland siðskiptatímans. Þjóðfé- lagsþróun undanfarinna alda var hægari þar en í öðrum vestlægum löndum. I Frakklandi og Englandi spruttu upp tvær stórar verzlunarborgir, París og London, og urðu miðstöðvar þjóðlífsins. I þessum borgum sátu ríkisstjórn- irnar, og þar reis upp öflug innlend verzlunarstétt, sem tók þátt í heimsverzluninni og varð þess umkomin að lána

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.