Réttur


Réttur - 01.08.1950, Page 64

Réttur - 01.08.1950, Page 64
224 RÉTTUR í fyrstu velviljaður bændunum og telur margar kröfur þeirra skynsamlegar, en býður þeim þó að hlýða yfirvöld- unum samkvæmt boðum heilagrar ritningar. Þegar átökín hörðnuðu milli bænda og landeigenda, brýnir Lúther furst- ana gegn þeim og segir: „Þess vegna, kæru herrar, verðið þér hér að frelsa, bjarga, hjálpa og miskunna yður yfir veslings mannfólkið. Stingið, höggvið, sláið, drepið, hver sem getur. Ef þú býður bana þess vegna, þá hrósaðu happi, því að sælli dauðdaga getur þú aldrei hlotið, því að þá deyrðu í hlýðni við guðs orð og skipanir og í þjónustu kær- leikans til þess að leysa náunga þinn úr viðjum helvítis og djöfulsins.” Síðar skýrir hann afstöðu sína til alþýðunnar með þessum orðum: „Asnann verður að lemja, og skríln- um verður að stjórna með ofbeldi.“ Það er táknrænt fyrir Þýzkaland, að það voru furstarnir, en ekki keisari og alrík- isvaldið, sem skar upp herör gegn bændabyltingunni, og að lokum voru bændur sigraðir og brytjaðir niður miskunnar- laust. Eftir það urðu þeir að þola, hvað sem þeim var boðið, þangað til hlutur þeirra var réttur í byltingunum um 1800. Endurskírendahreyfingin var af svipuðum rótum runnin og bændabyltingarnar. Endurskírendur tóku kenningar Lúthers mjög bókstaflega um réttindi kristins mans, og kröfðust þess, að trúnni yrði ekki einungis breytt í sam- ræmi við boðskap biblíunnar, heldur einnig sjálfu þjóðfé- laginu. Þeir áttu mestu fylgi að fagna meðal öreigalýðs borganna, en voru myrtir og píndir hópum saman, og aðal- borg þeirra, Miihlhausen, tekin herskyldi 1525 og leiðtogi þeirra Thomas Múnzer, drepinn. Þá er talið að gengið hafi verið milli bols og höfuðs á endurskírendum sem stjórn- málahreyfingu. Bylting borgaranna Siðabót Lúthers mótaðist endanlega í viðureignunum við bændur og endurskírendur. Héðan í frá varpaði Lúther

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.