Réttur - 01.08.1953, Qupperneq 5
RÉTTUR
141
fyrir auðvaldinu að eitra íslenzkt þjóðlíf og leysa upp manngild-
ishugmyndir þess, vegna þess að bæði hin forna sveitamenning
og sósíalistísk verklýðshreyfing nútímans unnu þar á móti. En
einmitt á síðustu árum hefur aðstaðan stórbreytzt auðvaldinu og
siðferðilegum upplausnaröflum þess í hag. Það þarf verklýðshreyf-
ingin tafarlaust að gera sér ljóst og breyta samkvæmt því.
2. Amerísku auðvaldsáhrifin flýta geigvænlega
fyrir „af-menn-ingunni".
Bandaríki Norður-Ameríku eru það auðvaldsþjóðfélag, þar sem
auðvaldsskipulagið hefur orðið hreinræktaðast. Þar hafa því einn-
ig þau skaðsemdaráhrif þess, sem hér eru gerð að umtalsefni,
orðið mest áberandi. Hvergi í veröldinni hefur matið á manninum
orðið eins „borgaralegt“ og þar. Hvergi hefur manngildið eins
orðið að víkja fyrir peningagildinu og þar. Kemur þar einkum
tvennt til greina um orsakir.
Annarsvegar þetta: Bandaríska þjóðfélagið er auðvaldsþjóðfélag
frá upphafi vega. Það mannfélag, er fyrir var, þjóðfélag Indíán-
anna, sem vissulega hafði manngildishugsjónir svipaðar þeim, sem
íslendingar á söguöld, var upprætt og menning þess hafði engin
áhrif á nýtísku auðvaldsmenningu Bandaríkjanna, nema leggja til
nöfn á sumar alræmdustu auðvaldsborgir þeirra, eins og Chicago.
Það, sem fastheldni við fornar manngildishugsjónir, eða endur-
vakning þeirra, gat áorkað óbeint á móti spillingaráhrifum auð-
valdsskipulagsins, svo sem hér og á Norðurlöndum, það vantaði
alveg í Bandaríkjunum. Auðvaldið fékk, óhindrað af gömlum
erfðum, að ryðja sínu mati á mönnunum braut: peningamatinu.
Hinsvegar þetta: Verklýðshreyfingin, sem varð bjargvættur al-
þýðunnar í Evrópu, eigi aðeins hagsmunalega séð, heldur og sið-
ferðilega, hefur ekki megnað að verða hið mikla andlega og póli-
tíska afl í Bandaríkjunum, sem gæti gert hina smáu sterka í
krafti þess að þeir findu og vissu að þeir væru fjöldinn, er stæði
saman allir fyrir einn og einn fyrir alla. Hugsjón sósíalismans, boð-
skapurinn um gildi hins vinnandi manns, um manngildi alþýðunn-
ar, hefur ekki náð til fjöldans í Bandaríkjunum, til að skapa mót-