Réttur - 01.08.1953, Blaðsíða 13
RÉTTUR
149
ir þjóðinni, reka erlenda innrásarherinn úr landi hennar, brjóta
ok auðvaldsins af hálsi hennar og leiða hana fram til sósíalisma
og alþýðufrelsis.
Það er þetta hnarreista höfuð, sem auðvaldið nú vill beygja. Það
er þetta stéttarstolt, sem auðvaldið nú vill brjóta. Það er þessi sig-
urvissa meðvitund alþýðunnar, sem auðvaldið nú vill eitra og eyöi-
leggja. — Og þannig er vegið að þeim anda verklýðshreyfingar-
innar, sem er dýrmætari en allir hagsmunir hennar, af því allir
hagsmunasigrar alþýðunnar byggjast á þessum baráttuþrótti,
kjarki, hugrekki.
Þessvegna er allri atlögu auðvaldsins að verklýðshreyfingunni
nú beint að hjartastað alþýðunnar, allt frá þeim ósjálfráðu áhrif-
um auðvaldsskipulagsins að setja peningagildi í stað manngildis,
beygja kné mannsins fyrir Mammon dollarsins, og til skipulagðra
skoðananjósna og atvinnuofsókna í þeim tilgangi að minnka mann-
inn, brjóta hann siðferðilega á bak aftur.
Alþingiskosningarnar 1953 voru alvarleg viðvörun til verkalýðs-
ins um að hann verði tafarlaust að skapa með sér baráttueiningu
á stjórnmálasviðinu.
Sú vakning sem greinilega er hafin í verklýðshreyfingunni með
einingarsigrum í stjórnarkosningum fjölmargra verklýðsfélaga,
sýnir að verkalýður íslands er að átti sig á hvað er í húfi.
21. febrúar 1954 gerði Iðja, félag verksmiðjufólks, samþykkt út
af þessum mólum, sem í senn er tímabær og til fyrirmyndar. Sú
einróma samþykkt Iðju hljóðar svo:
„Aðalfundur Iðju, félags verksmiðjufólks, haldinn 21. febrúar
1954, lítur á það sem höfuðnauðsyn verksmiðjufólks sem og
verkalýðsins í heild, að samtök lians verði efld og styrkt sem
mest til þess að vernda hagsmuni og félagslegt frelsi verkafólksins.
Framar öllu telur fundurinn það brýna nauðsyn, að verka-
lýðssamtökin sýni fullt sjálfstæði gagnvart atvinnurekendum, og
telur það háskalegt og vansæmandi fyrir verkalýðssamtökin, að
þau þoli ofsóknir eða kúgunarráðstafanir á hendur einstökum
meðlimum samtakanna, t. d. með hótunum um atvinnumissi vegna
starfa fyrir samtökin eða vegna stjórnmálaskoöana.
Fundurinn lítur svo á, að árás á einn meðlim samtakanna sé
árás á samtökin í heild.
Þess vegna skorar fundurinn á alla meðlimi félagsins og á allan