Réttur - 01.08.1953, Page 16
152
RÉTTUH
er alvarlegasta áminning til þeirra, sem enn ekki skilja að barátt-
an er nú háð um tilveru íslendinga:
t
„Ef er gálaust af að má
eins manns blóð úr lífsins sjóð,
hvað mun þá að hyggja á
heillar þjóðar erfiljóð?“
Sigurvissan, sem hljómar frá niðurlagi Kolbeinslags, er fyrir-
heit um sigur íslands yfir ameríska auðvaldinu. Síðasta vísa
Kolbeins er þrungin meðvitundinni um sigur fólksins yfir „herra-
dóminum“, tilfinningu hins vinnandi manns um yfirburði sina
yfir „þræla-húsbóndann“. Og eins er síðasta vísa Kölska táknið
um uppgjöf „höfðingja þessa heims“ í viðureigninni við íslenzka
þjóð: „Þá ertu ekki fyrir fjandann!“
„Og Kolbeinn skaut árum við útræði löng,
með unun frá nóttinni horfnu:
Að enn mátti finna upp sigur og söng,
í samhljómum laganna fornu“
„Réttur" hefur oft minnt á Stephan G. og vitnað í hann. Við
skulum nú, á 100 ára afmælisári hans, birta Kolbeinslag í heilu
lagi. Það á svo brýnt erindi til okkar allra í dag].
Hjá höfðingja þessa heims
Mansöngur
Vil ég yður velkominn!
Veit ég siðinn, herra minn :
opna hliðið álotinn.
Aðgangsmiðinn? Stígið ihn!