Réttur - 01.08.1953, Side 42
Forusta verkalýðsins í
baráttu fólksins gegn
einokunarauðvaldinu
Ræða flutt á þingi Alþjóðasambands
verklýðsfélaganna í Vín.
eftir DE VITTORIO, forseta AlþjóÖasambands verklýÖsfélaganna
ALÞJÖÐASAMBAND VERKALÝÐSFÉLAGANNA,
W.F.T.U., er tvímælalaust voldugasta baráttutækið sem
verkalýðurinn nokkurntíma hefur eignast, ekki eingöngu
vegna þess mikla fjölda verkalýðs hvarvetna úr heimin-
um, sem skipað hefir sér undir merki þess, yfir áttatíu
milljónir, heldur engu síður vegna hinna ókvikulu stefnu
þess og starfshátta.
Alþjóðasambandið hélt þriðja þing sitt í Vínarborg,
dagana 10—21. okt. s 1. Til þessa þings var boðað með
þeim óvenjulega hætti að öllum verkalýðssamtökum var
heimilt að senda þangað fulltrúa, án tillits til þess hvort
þau voru skipulagslega tengd Alþjóðasambandinu eða
ekki. Þingið sátu nær níu hundruð fulltrúar, þar af
323 frá samtökum utan Alþjóðasambandsins. Þessi mikla
þátttaka frá samtökum utan sambandsins, er ljós vottur
þess álits er það nýtur meðal verkalýðsins. Höfuðprestur
afturhaldsins, Bandaríkin, hindruðu þátttöku verkalýðs-
ins þar í landi, í þinginu með því að neita fulltrúunum
um vegabréf. Þingið gerði margar mjög þýðingarmiklar
ályktanir í hagsmunamálum verkalýðsins, og voru þær
allar gerðar einróma.
Ræðu þá er hér fer á eftir, ílutti forseti sambands-
ins, DI VITTORIO, sem jafnframt er forseti ítalska verka-
lýðssambandsins, CGIL, sem framsöguræðu um annan
dagskrárlið þingsins, Starf verkalýðsfélaganna.