Réttur - 01.08.1953, Side 44
180
RÉTTUR
til hjarta, væri skiljanlegt ef maður héldi að heimurinn réði
ekki yfir nægri framleiðslugetu, en það er óþolandi undir núver-
andi kringumstæðum þegar offramleiðslan en ekki vöruskortur-
inn ríkir og aðeins vantar kaupgetu til þess að allir hafi nóg.
Það er einmitt þessi ofgnægð og hinsvegar ófullnægðar þarfir
íólksins sem er orsökin að þeim hörmungum er þjá mannkynið,
kreppur, atvinnuleysi og styrjaldir, eiga þangað rót sína að rekja.
Við vitum að hér er ekki um neitt nýtt fyrirbrigði að ræða,
því að beztu fræðimenn verkalýðsstéttarinnar, þektir og virtir
af verkalýð alls heimsins, hafa fyrir löngu sýnt fram á þetta. Svo
að við vitum að þessar grundvallar andstæður eru óhjákvæmilegir
fylgifiskar framleiðslu auðvaldsskipulagsins ekki hvað sízt á
hnignunartíma þess, tíma hringavaldsins.
Tilgangurinn er að vekja athygli verkalýðsins og verkalýðs-
samtakanna á valdi hringanna yfir efnahagslífi þjóðanna, skað-
semi áhrifa þeirra fyrir nauðsynlegar framfarir og umbætur, og
framar öðru hvað verkalýðnum ber að gera til að ná árangri
1 baráttu sinni gegn hinum hættulegu áhrifum þeirra á lífskjörin,
ekki aðeins verkalýðsins heldur allra vinnandi manna.
Það er staðreynd að veldi hringanna í löndum auðvaldsins
og nýlendunum er meira nú en nokkru sinni fyrr, sérstaklega
hafa þeir magnazt eftir styrjöldina, eða síðan auðhringir Banda-
ríkjanna tóku forystu heimsvaldasinnanna í sínar hendur.
Það er alkunn staðreynd, að nái hringavaldið tökum á ein-
hverri grein efnahagslífsins, notar það aðstöðu sína til að pína
sem mestan gróða út úr framleiðslunni árj nokkurs tillits til hags •
muna neytendanna. Til þess neytir það allra bragða, rányrkir
hráefnalindir, dregur úr framleiðslunni og skapar verðbólgu.
Mikill ágóði á lítilli framleiðsiu, fenginn með auknu arðráni
á verkalýðnum og háu verðlagi, er áhættuminni fjáröflunarað-
ferð fyrir hringana en mikil framleiðsla á lágu verði.
Samdráttar gætir æ meir í framleiðslu þeirra landa er skammt
eru á veg komin efnahagslega og framfarir í landbúnaði eru al-
gerlega stöðvaðar. í stað þess að miða framleiðsluna við þarfir
fólksins er hún í vaxandi mæli aðhæfð styrjaldarundirbúningnum.
Stefna hringavaldsins, er stöðugt eykur fátækt verkalýðsins og
allrar alþýðu, þrengir jafnt og þétt innlenda markaðinn og hindrar
á þann hátt vöxt framleiðslunnar. Atvinnuleysið er orðið var
viðvarandi í ýmsum löndum, er að verða óaðskiljanleg fylgja
efnahagskerfis hringavaldsins.
Þrátt fyrir mjög ófullkomnar skýrslur sýna þær þó að mikið
atvinnuleysi er í löndum sem skammt eru á veg komin atvinnu-