Réttur


Réttur - 01.08.1953, Page 45

Réttur - 01.08.1953, Page 45
RÉTTUR 181 lega, t. d. 50 millj. í Indlandi, 15 millj. í Indónesíu og milljónir í löndum Suður-Ameríku, einnig sýna þær ískyggilegan samdrátt í atvinnulífi auðvaldslandanna sem hafa háþróað efnahagslíf. Samkvæmt skýrslum Sameinuðu þjóðanna hélzt atvinnulegt jafnvægi í 6 auðvaldslöndum 1951 og 1952, í Kanada, Frakklandi, Ítalíu, Noregi, Svíþjóð og Bandaríkjunum. Á sama tíma var um afturför að ræða í 4 löndum, Belgíu, Danmörku, Hollandi og Bretlandi. í Bretlandi var um afturför að ræða líka miðað við 1950. Til að gera okkur fulla grein fyrir hversu alvarlegt mál hér er um að ræða, verðum við að hafa í huga fólksfjölgun þessara landa, æskufólkið sem milljónum saman kemur á vinnumarkaðinn í leit að framtíðarmöguleikum. En æskan kemur að öllum dyrum lokuðum, hvert sæti er skipað. Henni er ekki aðeins meinað að velja sér atvinnu við sitt hæfi, í samræmi við þá undirbúnings- menntun er hún hefur aflað sér, heldur er henni í mjög mörgum tilfellum algerlega varnað að vinna sér brauðs. Þessu æskufólki er hafnað um leið og það er tilbúið að hefja lífsstarf sitt og það skilið eftir án allra möguleika til að lifa mann- sæmandi lífi. Atvinnuleysi æskulýðsins með öllum sínum hætt- um fyrir þroska komandi kynslóðar er ein af hættulegustu þjóð- félagsmeinsemdunum, er hringavaldið leiðir yfir þjóðirnar. Verkalýðsfélögin verða að láta baráttu verkalýðsæskunnar til sín taka og styrkja hana í baráttunni fyrir rétti sínum til vinnu og brauðs. Þrátt fyrir ófulllcomnar atvinnuleysisskýrslur er vöxtur skráðra atvinnuleysingja ískyggilegur. í Danmörku var tala skráðra at- vinnuleysingja, 1950, 8,7% vinnufæra manna, í dag er hún 12.5%. Á sama tíma hefur hún vaxið á Ítalíu úr 14 í 16%, í Belgíu úr 6,8 í 6,9%. Vitanlega notfæra atvinnurekendur sér atvinnuleysið til að halda verkalýðnum í stöðugum ótta við atvinnumissi, og láta hann þess vegna sætta sig við hverskonar kjaraskerðingu, og síaukinn vinnuhraða er ógnar heilsu hans. Þrátt fyrir þetta hefur áróðursvél Bandaríkjanna tekið upp harða baráttu í öilum auðvaldslöndum Evrópu fyrir auknum afköstum. Verkalýðsstéttin, sem er framsæknasta stétt vorra tíma, er yfirleitt fylgjandi auknum afköstum sem einum þætti almennra framfara. En afkastaaukningin verður að byggjast á aukinni tækni og bættum vinnuaðferðum. Þá á verkamaðurinn að njóta ávaxt- anna af framleiðsluaukningunni í hærri launum og neytandinn í lækkuðu vöruverði. En þegar framleiðsluaukningin er fengin með amerísku að-

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.