Réttur - 01.08.1953, Qupperneq 52
188
RÉTTUR
hefur síður en svo verið útrýmt, heldur fer hún vaxandi. Þrátt
fyrir það þó börn og konur séu iðulega knúin til að vinna sömu
störf og fullorðnir karlmenn, skammta heimsvaldasinnarnir og
leppar þeirra þeim sultarlaun, í sumum tilfellum undir 70% af
launum landbúnaðarverkamanna. Einnig í þeim löndum sem
lengra eru á veg komin atvinnulega, er arðránið aukið með
síauknum vinnuhraða, og með vaxandi ákvæðisvinnu.
Vöxtur ákvæðisvinnunnar í hlutfalli við fastlaunaða vinnu hef-
ur vaxið á árunum 1930—1950, í Frakklandi, úr 45% í 70%, í
Bretlandi úr 34% í 38%, í Bandaríkjunum úr 30% í 60—70%, í
Svíþjóð úr 48 í 58% í Noregi úr 39 í 57% og í Finnlandi úr 35
í 58%.
Hundruð dæma mætti nefna um vaxandi arðrán verkalýðsins
á öllum sviðum atvinnulfsins. Sérstaklega áberandi dæmi er
námuiðnaðurinn, þar sem framleiðslan yfirleitt hefur aukizt en
verkamönnum farið fækkandi. Á árunum-frá 1949 til þessa dags
hefur framleiðslan aukizt, í Frakklandi um 85%, í Ítalíu um 75%, í
Japan um 16%, í Belgíu um 34%, í Saar um 38%. í Bretlandi hafa
afköst verkamanns sem vinnur neðanjarðar aukizt um 20% og
í Vestur-Þýzkalandi um 10%.
Áhrifin af vaxandi drottnun hringavaldsins yfir efnahagslífi
auðvaldslandanna hafa í för með sér síversnandi lífskjör, ekki
aðeins fyrir verkalýðinn heldur einnig bændur, smákaupmenn
og handiðnaðarmenn, og aðrar millistéttir.
Milljónir bænda flosna upp og hrekjast frá jörðum sínum.
Aðrir sökkva æ dýpra í skuldafenið. Samkvæmt yfirliti um land-
búnað Bandaríkjanna 1952, útgefnu af „Federal Reserve“, voru
skuldir bænda það ár, 80% hærri en í jan. 1946.
í nýlendunum er ástandið þó enn verra. Okurvextirnir af lánum
til smábænda komast þar allt upp í 100—160% og skattabyrðarnar
eru óþolandi. Þegar bændurnir ekki fá lengur risið undir byrð-
unum eru þeir reknir frá jörðum sínum með valdi. Þannig voru
3000 bændafjölskóyldur fluttar nauðugar af landi sínu í Tangan-
ika árið 1952.
í Kenya eru bændurnir flæmdir af jörðum sínum með her-
valdi og þorp þeirra brennd.
Hér hefur verið sýnt fram á, hvernig auðvaldið mergsýgur allan
auðvaldsheiminn með þrælatökum sínum á efnahagslífi þjóðanna,
jafnt allar millistéttirnar sem verkalýðinn. Þessar stéttir verða
því að ganga til liðs við verkalýðshreyfinguna í baráttu hennar
gegn arðráni auðvaldsins, fyrir bættum lífskjörum allrar alþýðu.
í þeirri baráttu mun Alþjóðasambandið verða í fylkingarbrjósti.