Réttur


Réttur - 01.08.1953, Side 65

Réttur - 01.08.1953, Side 65
RÉTTUR 201 fylktu sér við hlið verkalýðsfélaganna, nefndir voru kosnar í öllum þorpum og bæjum, með þátttöku úr öllum stéttum. Verkalýðsfélög klofningsmannanna vildu í fyrstu engan þátt í þessu eiga, en voru síðar neydd til þátttöku. Baráttan varð ein- ingarbarátta á því stigi að jafnvel prestarnir og bæjarfulltrúar Kristilegra demokrata tóku þátt í baróttunefndunum. Rafmagnshringurinn krafðist verðhækkunar á rafmagni ef hann réðist í byggingu nýrra orkuvera og setti það sem skilyrði fyrir því að hefjast handa um bygginguna. Ríkisstjórnin taldi þessa kröfu „sanngjarna“ og vildi verða við henni en verkalýðssam- bandið sagði nei og hóf baráttu um allt landið fyrir þjóðnýtingu raforkunnar. Hringurinn varð að láta í minni pokann. Bygging rafstöðvanna er hafin, og rafmagnsverðið var ekki hækkað. Nú vinna um þrjú þúsund verkamenn að byggingunni, sem áætlað er að kosti 13 þúsund milljónir líra. Þetta var glæsilegur sigur CGIL og fólksins í baráttu þess gegn hringavaldinu. Eitt dæmi ennþá : Montecatini áburðarhringurinn rakaði saman gróða á fram- leiðslu sinni, en notaði ekki nema 70% af framleiðslugetunni. Hið háa verðlag skapaði mikla óánægju meðal bændanna. Landsfélög efnaiðnaðarverkamanna og landbúnaðarverkamanna tóku málið til athugunar og komust að þeirri niðurstöðu að með því að takmarka gróða hringsins og nota framleiðslugetu hans til hins ýtrasta mætti gera hvorttveggja að bæta hundruðum verkamanna í framleiðsluna og lækka verðið á áburðinum um 15% til hagsbóta fyrir bændurna. Verkalýðssambandið lagði kröfur sínar fyrir hringinn sem í fyrstu neitaði algjörlega að hlusta á þær, en meðal bændanna vöktu kröfurnar almennan fögnuð. Eftir að verkamennirnir höfðu háð nokkur keðjuverkföll fóru svo leikar að hringurinn lækkaði verðið um 12%, bætti við 300 verkamönnum og jók íramleiðsluna til hagsbóta fyrir landbún- aðinn. Þessar aðgerðir styrktu mjög samvinnu bænda og verka- manna. Eitt af því er við höfum lagt megináherzlu á er að hindra upp- sagnir og koma í veg fyrir lokun verksmiðja. Vegna þeirrar kreppu, er ríkti í málmiðnaðinum, og tilrauna atvinnurekenda og ríkis- stjórnar að draga þar enn frekar saman seglin, tóku hlutaðeigandi verkalýðsfélög í samráði við CGIL málmiðnaðinn til rækilegrar athugunar.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.