Réttur


Réttur - 01.08.1953, Page 67

Réttur - 01.08.1953, Page 67
RÉTTUR 203 Félag leiguliða (leiguliðar er taka hluta af uppskerunni sem laun) berst fyrir aukinni vélnýtingu til að létta þeim starfið og bæta launin með aukinni uppskeru. í Livorno héraðinu hafa leiguliðarnir þvingað landeigendurna til að kaupa yfir átta hundr- uð landbúnaðarvélar, setja upp 89 sjálfvirk áveitukerfi og byggja 85 km. langa vegi frá ræktunarsvæðunum til borgarinnar. Við berjumst jafnhliða fyrir aukningu friðsamlegrar framleiðslu í verksmiðjunum og framförum í sveitunum. Lokaorð Félagar, ég vona að þau dæmi, sem ég hef nefnt, tali nægilega skýru máli. Við vildum miðla félögum okkar í öllum öðrum löndum af hinni dýrmætu reynslu okkar. Þetta þýðir ekki það að í engu sé áfátt hjá okkur í Ítalíu. Nei, við höfum gert mistök, það hefur borið á misskilningi og barátta okkar fyrir viðreisnar- áætluninni hefur ekki verið nægilega samfelld. En við erum staðráðnir í að leiðrétta þessi mistök. En vegna stefnu okkar og þeirrar baráttu er við höfum háð á grundvelli hennar, hefur okkur tekizt að ná þýðingarmiklum ávinningum. Þau dæmi, er ég hef tekið, sýna að okkur hefur tekizt, að vissu marki, að hindra áform einokunarauðvaldsins, höfum þvingað það til að verja mörgum þúsundum milljóna líra til friðsamlegra þjóðnytjaverka, peningum er það hefði tvímælalaust kosið að verja til hervæðingar. Við höfum þvingað ríkisstjórnina til að stórauka framlög sín til friðsamlegra framkvæmda, þrátt fyrir hernaðarstefnu hennar og undirlægjuhátt gagnvart amerísku heimsvaldastefnunni. Við höfum afhjúpað, betur en áður, blóðsugueðli einokunar- valdsins og andstæðurnar milli hinnar neikvæðu stefnu þess, stefnu stöðnunar, styrjaldar, afturhalds og fátæktar og þarfa verkalýðsins, framfara og friðar. Við höfum sannað þjóðinni að til er jákvæð lausn á vanda- málum hennar, og að CGIL er þess megnugt, með aðstoð fólksins, að knýja hana fram. Við höfum glætt trú verkalýðsins og alþýð- unnar á mátt sinn og sigurmöguleika. Við höfum aukið tiltrú fólksins til verkalýðssambandsins og aflað því bandamanna í öllum stéttum. Enginn ítali efast um það að hinn glæsilegi kosningasigur verka- lýðsflokkanna var að verulegu leyti vinsældum CGIL að þakka,

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.