Réttur - 01.08.1953, Síða 75
RÉTTUR
211
verður í tölum. Vísindamennirnir, bæði karlar og konur,
munu ekki síður láta að sér kveða hvað snertir gæði en
f jölda. Nú þegar fá 6,2 af hundraði allra barna í Sovétríkj-
unum, þar af hlutfallslega fleiri í borgunum, æðri menntun.
Þetta er ekki sama og þriggja ára hundavaðsnámið við
enskan háskóla eða amerísk college, heldur staðgott fimm-
ára nám og að því loknu hefur nemandinn náð menntun
sem samsvarar meistaragráðu hjá okkur. I Sovétríkjunum
sjá hinir eiginlegu háskólar aðeins um tiltölulega lítinn
hluta hinnar æðri menntunar. Hitt fer fram í sérfræðistofn-
unum. Þar eru lækna- og landbúnaðarháskólar, verkfræði-
og vélfræðiskólar, einnig leiklistar-, tónlistar- og myndlist-
ar-stofnanir. Við þær allar er sama langa námsbrautin og
þær standa allar á háu stigi.
Hvernig má það vera að í Sovétríkjunum skuli vera
hægt að finna svo marga hæfileikamenn á hinum ýmsu
sviðum, þegar okkur er sagt að við höfum hér, með aðeins
3,1 af hundraði ungra karla og aðeins 0,6 af hundraði ungra
kvenna, þegar þurausið brunn hæfileikanna með þjóð vorri ?
Það eru tvær augljósar skýringar: í fyrsta lagi, að þar
fyrir handan hefur talan verið tvöfölduð með því að opna
konum leið til mennta til jafns við karla og i öðru lagi,
að hin skaðsamlega herskylda, sem rænir unga nemendur
hjá okkur a. m. k. tveim dýrmætustu námsárunum, nær
ekki til háskólastúdenta og annarra samsvarandi skóla-
nemenda þar eystra. Allt sem þeir þurfa að inna af hendi
í þá átt er þjálfun í nokkrum undirstöðuatriðum við skól-
ana sjálfa og að fara í herbúðir einu sinni á ári.
Aðalorsökin á sér samt dýpri rætur en þetta, sem sé,
að þar hefur verið viðurkennd sú sósíalistíska grundvall-
arskoðun, að allir, jafnt karlar sem konur, séu móttækilegir
fyrir menntun og að sköpun kommúnistísks þjóðfélags
krefjist þess og það skjótt, eins og Stalín sagði, að sérhver
maður hlyti æðri menntun. Það er erfitt, að færa sönnur
á að fólk sé óhæft til náms, en það er auðvelt að varna