Réttur - 01.08.1953, Page 78
214
RÉTTUR
indanna í Sovétríkjunum og vegna hinna mörgu stofnana,
sem standa undir ýmsum stjórnardeildum eru þær í nán-
um tengslum við sókn þjóðarinnar í iðnaði og landbúnaði.
Þær eru einnig raunverulega ábyrgar fyrir áframhalds-
menntun til þess, sem samsvarar doktorsgráðu hjá okkur.
Ég hafði áður séð nokkuð af störfum þessara stofnana
á liðnum árum og raunar fylgzt með framförum sumra
þeirra í meira en 20 ár, en ég varð þó undrandi er ég nýlega
kom þar, yfir hinum hröðu framförum nú á síðustu árum
bæði hvað snertir umfang og gæði. Ég hef séð þar vísinda-
rannsóknir, framkvæmdar eins og allir góðir vísindamenn
óska eftir, án tillits til kostnaðar og þó jafnframt án þarfar
fyrir áberandi bruðl. Miklu mikilvægara er, að náðst hefur
lífrænt jafnvægi milli framtaks og hugkvæmni einstakling-
anna og skipulagðs samstarfs. Sönn vísindastefna, sem
aldrei getur samþýðst hinum andstæðu kröfum í auðvalds-
þjóðfélagi, stendur hér í fullum blóma. Skýrslur akademí-
anna um þátt vísindanna í hverri fimm ára áætluninni
eftir aðra sýna hvernig hagnýtur skilningur á gildi vísind-
anna hefur aukist ár frá ári.
1 síðustu skýrslu gerir forseti akademíunnar, Nesmejan-
off prófessor, grein fyrir stjórnlistinni í framsókn vísind-
anna í sósíalistisku þjóðfélagi í þessum fáu orðum.
„Verkefni vort er fyrst og fremst að bæta til mikilla muna
störf vísindastofnana vorra og vísindamanna og auka
vinnuafköst þeirra. Starfsliði þeirra verður að einbeita að
lausn aðalverkefna vísindanna og skilgreiningu þessara
verkefna skýrt og nákvæmlega. Með því að tengja vísindin
á allan hátt nánar starfinu að uppbyggingu kommúnism-
ans, iðnaðinum og framleiðslunni, með því að tileinka okk-
ur reynslu iðnaðarins og þeirra sem komið hafa á nýjung-
um í framleiðslunni, hljótum við að leysa hin mikilvægustu
fræðilegu verkefni vísindanna.“
I þessari stefnuskrá, sem hann skýrgreinir, er áherzlan
lögð á leiðirnar til að létta stritinu af verkamönnunum