Réttur


Réttur - 01.08.1953, Side 83

Réttur - 01.08.1953, Side 83
RÉTTUR 219 menn hans eru enn algerlega einráðir um stefnu flokksins og samstarfið við Ihaldið í verkalýðshreyfingunni á að halda áfram eins og hingað til. Rétt fyrir þingsbyrjun sneri Þjóðvarnarflokkurinn sér til Sósíalistaflokksins og Alþýðuflokksins og kvaðst reiðubú- inn til að hafa samstarf við þessa flokka sameiginlega um kosningu í þingnefndir. Sósíalistaflokkurinn svaraði strax játandi, en Alþýðuflokkurinn neitaði og ákvað að hafa samvinnu við afturhaldsflokkanna eins og undanfarið. Þá neitaði Þjóðvarnarflokkurinn að hafa samvinnu við Sós- íalistaflokkinn og sat hjá, úr því hann átti ekki kost á að kjósa í nefndir fulltrúa Alþýðuflokksins, sem fastast hafa staðið með hernáminu. Sameiginlega höfðu Sósíalistaflokk- urinn og Þjóðvarnarflokkurinn afl atkvæða til að fá full- trúa í öllum fimm manna nefndum þingsins. En vegna hjásetu Þjóðvarnarmanna fengu hernámsflokkarnir alla fulltrúana, en andstæðingar hernámsins engan. Til þess að útiloka Sósíalistaflokkinn, útilokuðu þeir sjálfa sig einn- ig. Sama sagan endurtókst að mestu, þegar kosið var í fastar milliþinganefndir. Þetta er ágætt dæmi um fram- komu og hlutverk hins svokallaða Þjóðvarnarflokks á þingi, sem og á öðrum vettvangi. Verzlunarsamningar við Sovétríkin. I júlí var svo komið viðskiptum okkar íslendinga við Marshallblökkina að flest hraðfrystihús landsins voru lok- uð og tuttugu og sjö nýsköpunartogarar láu bundnir í höfn. Þetta algera gjaldþrot Marshallstefnunnar á sviði milliríkjaviðskiptanna og einróma kröfur fiskframleiðenda og almennings knúði loks ríkisstjórnina til þess að taka boði ráðstjórnarinnar um víðtæka verzlunarsamninga. Viðskiptasamningur milli Islands og Sovétríkjanna var undirritaður 1. ágúst og gildir hann í 12 mánuði. Sovétríkin kaupa af okkur 21 þús. tonn af frystum fiski og er það um það bil % venjulegrar framleiðslu. Ennfremur 100 þús.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.