Réttur - 01.08.1953, Page 88
224
RÉTTUR
inum, enda þótt sá skattur væri lagður á þjóðina til þess
að hækka fiskverðið.
Verkfallið hófst um áramót, og tóku brátt þátt í því um
200 skipshafnir víðsvegar um land. Ekki voru gerðar neinar
tilraunir til samninga fyrr en verkfallið var hafið. Dró
ekkert saman á fyrstu fundum samningsaðila og var málið
afhent sáttasemjara ríkisins. 18. janúar tókust samningar.
Var samið um að verð á þorski skyldi vera kr. 1.22 í stað
1.05 áður eða 16% hækkun. Verð á öðrum fisktegundum
skyldi hækka í sama hlutfalli. Jafnframt skuldbatt ríkis-
stjórnin sig til að beita sér fyrir því að slysabætur vrðu
tvöfaldaðar.
Þetta var mikill sigur fyrir sjómenn og er mest um vert
að ákvörðunarréttur sjómanna um fiskverð var nú viður-
kenndur í fyrsta skipti.
Samtök sjómanna reyndust góð, enda þótt ýmsir stjórn-
endur þeirra félaga, sem lúta forystu Alþýðuflokksins
tækju brátt að bila þegar á verkfallið leið. Ein tilraun var
gerð til að rjúfa samtökin, en mistókst algerlega. Formað-
ur Sjómannadeildar Verkalýðsfélags Akraness, sem er einn
af helztu foringjum Alþýðuflokksins á staðnum, bar fram
tillögu um sérsamninga fyrir allmiklu lakari kjör en um
samdist. Sú tillaga var fellt með miklum meirihluta at-
kvæða. Ekki er að efa að sjómenn hefðu getað náð mun
betri samningum, ef ekki hefðu komið til þær veilur, sem
jafnan er til staðar í þeim félögum, þar sem Alþýðuflokk-
urinn hefur forustu.
Kosningar í verkalýðsfélögum.
Um þessar mundir standa yfir stjórnarkosningar í verka-
lýðsfélögum. Er alstaðar um mjög athyglisverða sókn að
ræða af hálfu sameiningarmanna. í Dagsbrún í Reykja-
vík fengu sameiningarmenn hærri atkvæðatölu en dæmi
eru til í sögu félagsins, enda þótt Sigurður Guðnason, sem
verið hefur formaður þss í 12 ár léti nú af störfum og Al-