Réttur - 01.08.1953, Page 91
Bókafregnir
/
Kai Moltke: Pengemagt og
Ruslandspolitik. I.—II. For-
laget Tiden. 1953.
Höfundur þessar bókar er einn
af beztu pólitísku rithöfundum
Dana. Hann hefur verið kommún-
isti frá því á stúdentsárum sínum,
var handtekinn af nazistum á her-
námsárum Danmerkur og fluttur
í þýzkar fangabúðir og sætti mjög
slæmri meðferð, sem enn bagar
heilsu hans. Eftir stríðið og heim-
komuna hefur hann skrifað
hverja bókina á fætur annari,
þar sem hann leggur sérstaka á-
herzlu á að sýna fram á það, sem
býr að baki stórveldastefnunnar
og styrjaldanna: græðgi auð-
mannastéttanna í stór^róða og
vélabrögð hinna voldugu auð-
hringa. — í bók sinni „Krigen
köbt paa Afbetaling“, sem kom
út 1946, rakti hann það, sem bjó
á bak við þróunina 1938—40 og
samanstóð bók sú af greinum,
sem hann þá reit í „Politiken“.
Síðar kom út bók hans „Mr.
Churchills anden Krig'1, og var
þar rækilega flett ofan af undir-
ferli Vesturveldanna gagnvart
Sovétríkjunum, meðan á stríðinu
stóð og höfuðþungi þess hvíldi á
sovétþjóðunum einum. „Krigens
Kræmmere" er ein allra merki-
legasta bók hans, þar sem hann
styðst við allar þær upplýsingar,
sem fram hafa komið við rann-
sókn Bandamanna á atferli auð-
hringanna miklu, einkum I.G.F.
(þýzka efna-hringsins) og Stand-
ard Oil. Er þetta meistaraleg
frásögn, sem hver einasti maður
ætti að kynna sér, til þess að vita
sannleikann um þau hrikalegu,
skuggalegu öfl, sem steypa þjóð-
unum í skelfingar styrjaldanna,
en safna sjálf ógrynni auðs á
mannvígum og eyðileggingum hjá
þjóðunum. Er oss íslendingum
ekki sízt vanþörf á að vita vel
um þessi öfl, ekki sízt eftir að
land vort og þjóð er gert að leik-
soppi þessara alþjóðaauðhringa
í blóði drifinni leit þeirra að
meiri og meiri gróða.
„Pengemagt og Ruslandspoli-
tik“ er síðasta bók Kai Moltke og
á alveg sérstaklega erindi til vor
íslendinga, enda mun ekki sízt
eldri kynslóðina fýsa að vita hvað
bjó á bak við alla þá æfintýra-
pólitík, sem leiddi til gjaldþrots
Landmandsbank-ans, fylgjast
með hvað baktjaldaátökum Emil
Glúckstadts og H. N. Andersen
(þ. e. Landmandsbank-ans og
Östasiatisk Compagni). Þessi bók
í tveim litlum bindum, um 300
síður hvert, segir okkur sögu
stærstu auðhringa Danmerkur í