Réttur - 01.08.1953, Qupperneq 94
230
RÉTTUR
legt, að í inngangi að ýmsum
köflum rekur höf. allrækilega
mismunandi skoðanir fræðimanna
á þeim vandamálum, sem þar um
ræðir. Aftast eru greinargóð
landabréf, skrár um efnisatriði,
persónu- og staðanöfn og ártöl
helztu atburðanna. Loks er svo
einkar nytsamleg og rækileg
ritaskrá.
Hvoru tveggja þessi sögurit eru
þýdd úr rússnesku, svo sem nöfn
höfundanna bera með sér, og þau
eru auðsæilega meðfram ætluð
sem handbækur við háskólann í
þessum greinum.
M. M. Rosental: Dic marx-
istiche, dialektischc Met-
hode (Hin díalektiska rann-
sóknaraðferð marxismans).
Dietz Verlag. Berlín 1953.
Höfundurinn er Rússi og hefur
margt um þessi efni skrifað. Bók
þessi er allýtarleg eða um 350
bls. og skiptist í fimm höfuðkafla.
Fyrsti kaflinn fjallar einkum um
þekkingarfræðina. Er þar rakin
nokkuð saga dialektiskrar hugs-
unar, svo sem hún kemur fram
í ýmsum heimspekikenningum.
Jafnframt er vikið rækilega að
sögu og félagslegum sjónarmiðum
díalektiskrar hugsunar og hversu
hún er frábrugðin og andstæð
jafnt hughyggju sem vélrænni
efnishyggju. í öðrum kaflanum
er einkum fjallað um þá hliðina,
er varðar samhengi og víxláhrif.
Ræðir þar m.a. um orsakanauð
syn, tilviljun og frelsi, sem grein-
ir dialektina frá hrærigrauts-
stefnu og hártogunar-list. í
þriðja og fjórða kafla grein-
ir frá lögmálunum um þróun
og byltingu, megind og eigind
— og í fimmta kaflanum er eink-
um fjallað um sjálfan kjarnann
eða kvikuna í hinni dialektisku
kenningu, hinar innri andstæður,
þróun þeirra og baráttu, inntak og
form. Bókin er öll hin fróðlegasta
og fjöldi dæma til greindur til
frekari útlistunar.
Friedrich Engels. Zur Ger-
chichte und Sprache der
Deutschen Frúhzeit. Dietz
Verlag Berlín 1952
Hér er safnað saman í eina bók
öllu því helzta, er Engels hefur
ritað um elztu sögu Þjóðverja.
Sumt af því hefur birzt áður í
öðrum ritum hans, eins og t. d.
kaflarnir úr Uppruna fjölskyld-
unnar eða ritg. um Merkurneytin
þýzku, en svo er annað sem ekki
hefur komið á prenti fyrr utan
Ráðstjórnarríkjanna svosem kafl-
arnir um sögu Frumgermana II.
og tímabil Frankanna, og er þar
m. a. ritgerð Engels um frankisku
mállýzkuna. Bókin er hin fróð
legasta og gagnlegasta í alla staði,
og furðulega tímabær í öllum
greinum, þrátt fyrir aldurinn.
Archibald Robertson: The
Origin of Christianity
(Uppruni kristindómsins).
Lawrenee & Wishart Ltd.
London 1953.
Höfundur hefur áður ritað
ýmislegt um trúarsöguleg efni,
einkum kristin. Bók þessi fjallar,
svo sem titillinn vísar til. um upp-
haf kristins dóms. Ræðir höfund-
ur um félagslegar rætur hans og
þau öfl, er helzt stuðla að sigri
hans í Rómaveldi. Hann rekur og
allrækilega Messíasarhugmynd-
ina, svo sem hún birtist i trúar-