Réttur - 01.03.1962, Page 6
70
K E T T U K
vinnandi sléttanna þarf fyrst og fremst að nota í þágu þjóð-
frelsisins: tryggja sjálfstœði Íslands, tilveru og viðgang ís-
lenzks þjóðernis, eflingu íslenzkrar menningar. Þetta ríkis-
vald þarf og að nota til þess að rétta hlut vinnandi stéttanna,
tryggja þeim stöðugar, varanlegar kjarabætur á grundvelli
þeirra framfara í atvinnulíjinu, sem viturlega rekinn áœtlun-
arbúskapur veitir. Og þetta ríkisvald verður einnig þeirri
atvinnurekendastétt til hagsbóta, sem vinna vill að eflingu
íslenzlcrar framleiðslu í þágu Islendinga sjálfra.
Það er hið mikla sögulega hlutverk Sósialistaflokksins og
Alþýðubandalagsins að skapa um þetta volduga verkefni þá
þjóðfylkingu lslendinga, sem veldur því og bjargar þarmeð
íslenzkri þjóð á mestu örlagastund hennar.
ÞEI RRA EIGI N ORÐ
„Við þurfum meira landsvæði, það er ekki seinna vænna að gera
sér grein fyrir því. Sérstaklega verður hin uppvaxandi kynslóð að
hafa þetta í huga.“
(W. Stain, vinnumálaráðherra í Bayern, í Aschafjenburg,
1. ágúst 1959.)
„Við verðum að endurheimta landssvæði Þýzka Heimsveldisins
frá 1937. Við megum aldrei gefa upp á bátinn landssvæðin handan
Oder-Neisse, né Bæheim og Mæri.“
(Baron von Richthafen, á fundi í Kaufbeuren, Bayern,
maí 1959.)
„Það er köllun Súdeta-Þjóðverja að frelsa Austur-Rvrópu, og í
þessu verða þeir að taka forystuna.“
(Seebohm, marz 1960.)
„Við megum ekki gefa austurhéruðin upp á bátinn. Menn verða
að gera sér grein fyrir því, að baráttan um þýzku austurhéruðin er
rétt að byrja.“
(Helluiege, í Boppard, 7. febr. 1960.)
(Tilvitanirnar að jinna í International Afjairs, 11. nóv. 1961, bls. 112—115.)