Réttur


Réttur - 01.03.1962, Blaðsíða 21

Réttur - 01.03.1962, Blaðsíða 21
K É T T U R 85 til skattfrjálsrar útgáfu hlutabréfa í samræmi við eignaaukningu fyrirtækja og hækkun verðlags er fyrst og fremst til þess ætluð að auðvelda eigendum hlutafélaga að draga gróða sinn út úr rekstri félaganna og ráðstafa honum til einkanota. Má auðveldlega nefna dæmi þess, að þessi breyting geri mögulegt fyrir hlutafélög að út- hluta árlegum arði, sem svarar til alls stofnfjárins, sem hluthafarnir lögðu fram í upphafi og félagið sjálft fái arðgreiðsluna alla dregna frá skattskyldum hagnaði. Óhætt mun þó að fullyrða að hvorugt þeirra atriða, sem nú hafa verið nefnd séu aðalatriði í skattabreytingunum nú, enda þótt þau hvort fyrir sig lýsi glögglega markmiði þeirra. Það eru fyrningar- reglurnar nýju, sem eru kjarni málsins og fela í sér gerbreytingu á aðstöðu íslenzkra gróðafélaga til arðráns af vinnustéttunum. Er þar ekki aðeins um að ræða að fyrningarreglurnar gefi gróðafélögun- um stórfellt aukna möguleika til þess að halda utan um þann aukna hagnað, sem þau ná, m. a. með launalækkunum, gengisfellingum og öðrum þvílíkum ráðstöfunum stjórnarvalda, heldur fela þær einnig í sér beinar heimildir fyrirtækjunum til handa til þess að stórhækka verðlag framleiðslu þeirra, — skattleggja þannig neyt- endur í sína þágu og velta afleiðingum verðbólgunnar yfir á þeirra herðar í enn ríkara mæli en áður. Hingað til hafa gilt þær reglur, að fyrningarafskriftir hafa farið fram með þeim hætti að fyrirtækin hafa aðeins mátt miða afskrift- irnar við stofnkostnaðarverð fjármuna sinna, þ. e. a. s. að þau hafa orðið að láta sér nægja að telja til árlegs kostnaðar stofnverð fjármuna sinna skiptu niður á tiltekinn árafjölda, sem oftast hefur þó verið skemmri en raunverulegur endingartími eignanna. Síðan hafa þau svo haft heimild til að greiða eigendum sínum arð og færa hann til kostnaðar og svo loks að leggja % hagnaðar í vara- sjóð og leggja þar að auki til hliðar verulegan hluta gróðans, sem þá verður eftir. Nú á að verða sú breyting á, að fyrirtækin mega afskrifa eignir sínar miðað við endurnýjunarverð að frádregnum áður fram- komnum afskriftum. Vegna verðbólguþróunar undanfarandi ára og ekki sízt þeirra gífurlegu verðhækkana, sem núv. stjórnarstefna hefur leitt yfir þjóðina, er mismunur á stofnverði fjármuna og end- urnýjunarverði orðinn geysilegur í flestum tilvikum. Fyrningar- reglunum nýju er ætlað að létta þessum mismun að langsamlega mestu eða jafnvel öllu leyti af gróðamynduninni og leggja byrðar

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.