Réttur - 01.03.1962, Qupperneq 12
76
K É T T U R
Malthus var dyggur þjónn nýlendukúgaranna.Nafn hans hefur tengzt
kenningu, sem hefur reynzt mörgum stjórnendum heimsins nytsam-
leg og er eins gömul og óréttlæti í þjóðfélaginu. Malthus fékk góða
umbun fyrir verk sín, honum var veitt prófessorsstaða við háskóla
Indverska verzlunarfélagsins.
Það er nú orðinn siður að segja að nýlendustefnan sé í dauða-
teygjunum, en ég held, að nákvæmara sé að segja, að hún þjáist
aðeins af alvarlegum sjúkdómi. Sú staðreynd að fjörutíu lönd hafa
öðlast sjólfstæði á stjórnmálasviðinu, þýðir ekki að nýlendukúgun
sé að heyja sitt dauðastríð. Suður-Ameríka hefur notið stjórnmála-
legs sjálfstæðis í meira en heila öld, en efnahagslega eru ríkin þar
ennþá nýlendur. En til allrar hamingju lifum við nú á tímum, þegar
framfarir eru allar mjög örar, og ég vona að í Afríku verði nýlendu-
stefnan í ennþá skemmri tíma en hún hefur verið í Suður-Ameríku.
Indland og fleiri nýlendur.
Nýlendukúgararnir kunna vel skil á aðferðunum, sem orsaka
hungursneyð. Við skulum taka Indland sem dæmi. Þegar Bretar
komu fyrst til Indlands var „miðöld“ landsins að ljúka. Meðan ó
miðöldum Evrópu stóð var hungursneyð einnig alltíð þar, vegna
þess að efnahagskerfið var vanalega sniðið í stakk staðbundinnar
einokunar, og allar samgöngur voru mjög slæmar. Þegar Indland
var að koma af miðaldastigi sínu á átjándu öld var handiðnaður
landsins þegar háþróaður og dró til sín fjölda manns úr landbún-
aðarhéruðunum. Atvinnuleysi var þá óþekkt fyrirbæri í sveitaþorp-
unum. Grupdvöllur nútíma-efnahagskerfis var að skapast, þar sem
ekki fleiri unnu við landbúnað en nauðsynlegt var. En þá komu
Bretar og allt fór á ringulreið. Þeir eyðilögðu handiðnaðinn, kæfðu
vélaiðnaðinn í fæðingu og neyddu Indverjana til að snúa aftur til
sveitaþorpanna, sem allt of margt fólk byggði nú í hlutfalli við
tæknimöguleika þorpanna og fjármagn.
Og eins og ávallt átti sér stað með allar nýlendur var landbúnaður
Indlands nú miðaður við þarfir nýlenduveldisins.
Framleiðsla landbúnaðarins byggist nú á útflutningsvörum, —
ekki á þeim vörum, sem landsmenn þörfnuðust, því að útflutnings-
vörurnar einar gáfu nýlenduherrunum gróða. Þannig varð fram-
leiðsla þessara „nýlenduvara" aðalstarf íbúa heitu landanna, og
orsökin fyrir kúgun þeirra og þrælkun. Nýlenduþjóðirnar voru