Réttur - 01.03.1962, Side 24
GERARDO UNZUETA
meðlimur jramkvœmdanejndar Kommúnistajlolcks Mexíkós:
Látið Siqueiros lausan
HETJAN FRÁ PUERTO RICO
Mexikómaðurinn David Alfaro Siqueiros er einn mesti list-
málari 20. aldar. Hann fæddist árið 1898 og vann sér frægðarorð
þegar upp úr 1920. Dremenningarnir Siqueiros, Orozco og Rivera
mótuðu sérstæðan málarastíl, ádeilukennda raunsæisstefnu
byggða á mexíkanskri alþýðulist, en með surrealísku ívafi.
David Alfaro Siqueiros, hinn mikli mexíkanski málari, miðstjórn-
armaður Kommúnistaflokksins, hefur nú verið í fangelsi í hálft ann-
að ár. Samferða honum í dýflissuna varð öldungurinn Filomeno
Mata, 84 ára gamall byltingarsinnaður blaðamaður.
Siqueiros var tekinn höndum á heimili vinar síns 9. ágúst 1960,
en sama dag tvístraði lögreglan kröfugöngu stúdenta og aðstoðar-
kennara á götum Mexíkóborgar. Þar sem ríkisstjórninni var ljóst,
að þessar aðfarir gegn Siqueiros áttu sér enga stoð í lögum, reyndi
hún í fyrstu að afsaka þær. Saksóknari ríkisins lýsti yfir því gegn
betri vitund, að málarinn hefði ekki verið tekinn höndum, heldur
hefði hann verið beðinn að ganga frá lagalegum formsatriðum. En
innan fárra daga var frá því skýrt opinberlega, að Siqueiros væri í
varðhaldi á meðan á málsrannsókn stæði.
Siqueiros og Mata voru sakaðir um að hafa brotið gegn borgara-
legri reglu og kærðir fyrir að hafa haft vopn undir höndum og sýnt
ríkisvaldinu mótþróa. Rannsóknarskjölin voru sett í flokk með máls-
skjölum sakborninga úr starfsliði stéttarfélags járnbrautarmanna,
en þeir hafa sætt fangavist síðan 29. marz 1959. Allar þær ákærur
eru jafn veigalitlar.
Ákæruvaldið styðst eingöngu við þá fölsuðu fullyrðingu, að Si-
queiros hafi verið skipuleggjandi fyrrnefndrar kröfugöngu stúdenta,
og því beri hann ábyrgð á öllum athöfnum kröfugöngumanna. Til
þess að færa stoðir undir þessa fjarstæðu er vitnað í ýmsar ræður,