Réttur - 01.03.1962, Side 26
90
R E T T U II
sem málarinn hefur haldið bæði fyrr og nú og yfirvöldin telja til
undirróðursstarfsemi.
Akærurnar á hendur Siqueiros eru ekki aðeins fjarstæðukenndar,
heldur hrjóta þær og í bága við stjórnarskrána, þar sem þær eru
ósamræmanlegar lýðræðisréttindum mexíkönsku þjóðarinnar —
málfrelsi, prentfrelsi, funda- og félagafrelsi —, eins og ákvæðin um
þau eru í stjórnarskránni frá 1917. Þó var handtakan sjálf aðeins
byrjunin á réttarfarslegum brotum valdsstjórnarinnar.
Líkt og hinir, sem ákærðir voru, kom Siqueiros áfrýjun á fram-
færi, þar sem hann mótmælti varðhaldsúrskurðinum. Lög mæla svo
fyrir um, að slíka áfrýjun beri að taka til greina og svara án minnstu
tafar. En í þessu máli frestuðu yfirvöldin í fjóra mánuði að taka af-
stöðu til málsins.
20. nóvember 1960 á afmælisdegi mexíkönsku hyltingarinnar* *)
hófu pólitískir fangar og þeirra á meðal Siqueiros hungurverkfall.
Meðan á því stóð sneri nefnd menntamanna sér til hlutaðeigandi
yfirvalda með beiðni um það, að áfrýjunin yrði tekin til meðferðar.
En saksóknari gaf þeim þetta hundslega svar: „Það skiptir mig engu
máli, að ákærði er þekktur maður; hér bíður hann rannsóknar og
dóms í varðhaldi, og þannig á það að vera. Ef hann deyr, verður
málið sett í skjalasafnið, og ekki meira um það.“
Og það var ekki fyrr en í ágúst 1961, að áfrýjun Siqueiros var
svarað. Svarið var hnefahögg framan í almenningsálilið í landi okk-
ar og öllum heimi. Áfrýjunardómurinn studdi öll málsatriði varð-
haldsúrskurðarins og tók hvergi tillit til réltarstöðu málarans.
Nú er að vænta fullnaðardóms í máli Siqueiross.*) Fulltrúi ríkis-
stjórnarinnar tilkynnti í september niðurstöður sinar i réttarrann-
sókninni. Hann staðfesti ákæruna í megindráltum og krafðist 15 ára
fangelsis handa Siqueiros. Vafalaust mun dómarinn gera sér íar um
að þóknast ríkisstjórninni í úrskurði sínum.
En þó er á það að líta, að örlög Siqueiross og annarra, sem of-
sóttir eru af pólitískum ástæðum, ákvarðast ekki aðeins af duttlung-
um valdamanna. Almenningsálitið getur haft úrslitaáhrif á það,
hvernig dómur er upp kveðinn.
*) Byltingin batt endi á 35 ára harðstjórnartímabil Díazar hershöfðingja
1911.
*) Snemma marzmánaðar í ár var tilkynnt, að málarinn haíi verið dæmdur
til margra ára tugthúsvistar. — Ath. þýð.