Réttur


Réttur - 01.03.1962, Side 27

Réttur - 01.03.1962, Side 27
R É T T U R 91 Nú er mál Siqueiross og félaga er að komast á lokastig, skorum við á alla þá, sem þátt taka í baráttunni gegn ofsóknum og kúgun, að sýna mátt sinn og dug, svo að stjórnarvöld Mexíkós geti ekki annað en tekið tillit til þeirra. Það ber hina brýnustu nauðsyn til þess að láta Siqueiros lausan úr haldi sem allra fyrst, vegna þess að hann, sá eini sem lifir af hinum frægu mexíkönsku málurum nú- tímans, er þungt haldinn af lifrarsjúkdómi. Hann þarfnast sérstakr- ar umönnunar, sem hann fær ekki notið í sjúkradeild fangelsisins. Fangaverðirnir í Mexíkó eru álíka tillitslausir og bandarískir starfs- hræður þeirra voru gagnvart hinurn hetjulega kommúnista Henry Winston; það er fullyrt, að veikindi Siqueiross séu ekki „alvarleg11 og hann fái fullkomna læknisþjónustu í fangelsinu. En sannleikur- inn er sá, að heilsu hans hrakar dag frá degi, svo að ískyggilega horfir. Af þessum sökum er það verkefni allra lýðræðisvina, skylda allra, sem unna vísindum og listum, að leggja fram sinn skerf til þess að málarinn David Alfaro Siqueiros fái endurheimt frelsi sitt. „Ef við komum upp herfylkjum okkar, munum við tala við Frakk- land í öðrum tón.“ (Oberlander, des. 1954.) „Sviss er hluti af Þýzkalandi, sem hætt var að telja til Ríkisins 1648.“ (Greijinn aj Löuienstcin, des. 1954.) „Ríkisstjórn Sambandslýðveldisins Þýzkalands hefur opinberlega hvað eftir annað lýst því yfir, að hún vilji sameina Þýzkaland innan landamæranna frá 31. des. 1937, þ. e. landamæra Weimar-lýðveldis- ins. Þess vegna voru Oder-Neisse-línan og Austur-Prússland með réttu tekin upp í „kröfulistann“.“ (Ur bréfi Weiblingers, blaðajulltrúa við vestur-J>ýzka sendiráðið í Hollandi, jebr. 1960.)

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.