Réttur - 01.03.1962, Side 34
HENRY WINSTON:
Ofsóknir ameríska auðvaldsins
gegn Kommúnistaflokki
Bandaríkjanna
[Ameríska auðvaldið hefur löngum verið hatramt í ofsóknum sínum gegn
verkalýðshreyfingu og sósíalisma. Löngum hefur dómsmorðum og fangelsunum
verið beitt þar óspart til þess að reyna að hrjóta verklýðshreyfinguna á hak aft-
ur. Dómsmorðin í Cliicago 1885, dómurinn illræmdi yfir Eugene Debs, — sem
Stephan G. orti fegurst um, (shr. Rétt 1955, bls. 63) — dómsmorðin yfir Sacco
og Vanzetti og aftaka þeirra 1927, — blóðferill amerísks auðvalds er orðinn
langur og ljótur, bæði heima fyrir og crlendis.
Nú einheitir ameríska auðvaldið heima fyrir ofsóknum sínum gegn Kommún-
istaflokki Bandaríkjanna, jafnhliða því, sem það talar af ekta engilsaxneskri
hræsni um lýðræði, frelsi og mannrétlindi yfir öðrum þjóðum og þykist vera
verndari þeirra réttinda í heiminum.
Henry Winston, varaformaður miðstjórnar Kommúnistaflokks Bandaríkj-
anna, er einn þeirra, sem fangelsaður var og ofsóttur af ameríska auðvaldinu og
missti sjónina í dvöl sinni í dýflissu þess. Hann reit í des. sl. stutta greinargerð
fyrir ofsóknunum gegn Kommúnistaflokknum eftir stríð í tímaritið World
Marxist Review í bréfi til ritstjórnarinnar, þar sem hann m. a. þakkar öllum
þeim, sem átt hefðu þátt í því að frelsa liann úr ríkisfangelsinu í Bandarikjun-
um — og þannig jafnframt hjálpað til í baráttunni fyrir lýðræðisréttindum í
Bandaríkjunum. Fer greinargerð hans hér á eftir í þýðingu.
En þótt þrengt sé nú kosti þeirra hugumstóru karla og kvenna, er berjast
fyrir sósíalismanum í Bandaríkjunum, þá er þó auðvald Bandaríkjanna feigt,
en sigur alþýðunnar þar vís. Það er nú sem forðum, er Stephan G. kvað til Eug-
ene Debs, þá fangelsismúrarnir umluktu hann sjötugan, 1918:
„Ef að virðist tvísýnt tíða
tafl: livort lömbin sigri refinn,
öll er myrkvast efa og kvíða
Amerika — Debs skal kveða
J