Réttur - 01.03.1962, Síða 35
RÉTTUB
99
inn í tímann vilja og von —
enn er sú ei yfirgefin,
er á skálmöld hróka og peða,
á svo hugum-háan son.“
Og nú hefur Kúha þegar sýnt hvert leið amerísku þjóðanna liggur.]
Sumarið 1948 héldu íorustumenn Kommúnistaflokks Bandaríkj-
anna fund til þess að ræða fjölmörg mjög mikilsverð vandamál eftir-
stríðsáranna. A fundinum var m. a. fjallað um eftirfarandi viðfangs-
efni: Hvernig er hægt að tryggja þá samstöðu, sem styrjöldin hafði
skapað milli bandarísku þjóðarinnar og þjóða Sovétríkjanna?
Hvernig verður iðnaðinum bezt breytt frá styrjaldarframleiðslu í
iðnaðarframleiðslu á friðartíma, og tryggð atvinna 60 milljóna
verkamanna? Hvernig er hægt að auka lýðræðislegt frelsi og efla
baráttuna fyrir jafnrétti negranna í Bandaríkjunum?
Dagskráin var ekki einu sinni hálfnuð þegar erindrekar FBI*)
umkringdu aðsetursstað framkvæmdanefndar flokksins, lokuðu lyft-
unni, ruddust inn í bygginguna og handtóku forystumenn flokksins,
þar á meðal félaga Foster, Dennis og mig.
Fáir munu hafa búizt við því af ríkisstjórninni að hún tæki á-
kvörðun um slíkt skref. Flestir voru þeirrar skoðunar, að hún myndi
ekki ganga lengra en að leggja fram ákæru á hendur Kommúnista-
flokknum. Framfarasinnuð öfl og verkalýðshreyfingin stóð nú
frammi fyrir staðreynd hins grimma gerræðis.
Hvers vegna kom í ljós slíkt smánarlegt hatur hjá ráðamönnum
Bandaríkjanna, og ekki nema þrjú ár frá lokum síðari heimsstyrj-
aldarinnar? Skýringuna er að finna í viðleitni ameríska imperíal-
ismans til að tryggja sem fyrst yfirráð sín í auðvaldsheiminum, í
því hvernig hann notfærir sér það, að aðstaða annarra auðvalds-
ríkja til þess að efla ágengni sína í nýlendunum var lömuð, að hann
vildi hafa forustuna í baráttunni gegn sósíalismanum og einkum
gegn Sovétríkjunum. Lærdómum síðari lieimsstyrjaldarinnar var
stungið undir stól, og það svo rækilega að amerísku þjóðinni var
fyrirmunað að draga réttar ályktanir af þeirri reynslu. Og til þess
að baktryggja sig urðu yfirvöldin blátt áfram að ráðast að lýðræð-
inu, og þá fyrst og fremst á Kommúnistaflokkinn. Dean Acheson —
ráðherra í stjórn Trumans — lýsti þessu sem „algerðri stjórn-
*) bandaríska leynilögreglan,
L