Réttur - 01.06.1962, Page 62
174
R E T T U R
stjórn kommúnista í Kerala, sem ríkti í 28 mánuði, og var sett af
með valdi. Allan þennan tíma hafði hann yfirgnæfandi meirihluta
á sambandsþingi og ríkjaþingum, nema téð tímabil í Kerala. Þjóð-
þingsflokkurinn hafði því óvenjulega hagstæðar stjórnmálaforsend-
ur innanlands til að framkvæma stefnu sína.
Heimsástandið var líka hagstætt fyrir hraða efnahagsþróun ný-
frjálsu ríkjanna, þar með Indlands. Stórstígar efnahagsframfarir
sósialísku landanna og hjálpfýsi þeirra varð beitt vopn í hendi ríkis-
stjórna nýfrjálsu ríkjanna. Þessum löndum varð auðveldara að
standast þrýsting heimsveldanna og framfylgja sjálfstæðri stefnu.
Uppbyggingarárangur í þungaiðnaði indverska ríkisins er að tölu-
verðu leyti að þakka aðstoð Sovétríkjanna og annarra sósíalískra
landa.
Efling þjóðlcgs otvinnulifs.
Þrátt fyrir efnahagstruflanir, sem leiddu af skiptingu landsins,
voru efnahagsleg og stj órnmálaleg skilyrði hagstæð fyrir hraðar
framfarir. Þetta verður að hafa í huga, þegar ástandið á Indlandi
er metið í dag. Þetta ástand sýnir ljóslega möguleika og takmark-
anir kapítalískrar þróunar nýfrjálsra ríkja.
Vísitala iðnaðarframleiðslu jókst úr
100 árið 1950/1951 í
194 — 1960/1961.
Ekki var aðeins um aukningu að ræða, samsetningin breyttist
einnig. Byggð voru 3 stáliðjuver og það fjórða er í undirbúningi,
öll í ríkiseign. Vélsmíði 16-faldaðist á síðasta áratug, rafmagns-
framleiðsla þrefaldaðist.
Það fjármagn, sem fest hefur verið í ríkisframleiðslunni, óx úr
660 millj. rúpía í 4.650 millj., en það eru 30% alls fjármagns í iðn-
aðinum.
Samvinna Indlands við sósíalísku löndin skipli verulegu máli
fyrir þróun ríkisframleiðslunnar. í sept. 1960 hafði Indland fengið
alls 4.200 millj. rúpíur að láni frá þeim. Þrennt er það við efnahags-
aðstoð þessara ríkja, sem aðgreinir hana frá aðstoð heimsveldanna:
1. Lánin renna til framleiðslugreina, sem eru efnahagslegu sjálf-
stæði Indlands lífsnauðsynlegar, þ. e. til þungaiðnaðarins fyrst
og fremst.
2. Vextir eru afar lágir.