Réttur - 01.10.1977, Side 13
lenskum stjórnmálum. I>að jrarf að
byggja upp volduga vinstri hreyfingu,
Jrar sem allt félagshyggjufólk tekur hönd-
um saman í markvissri pólitískri sókn
gegn þeim fésýslu- og gróðaöflum, sem
í krafti síns auðs og valdakerfis drottna
í íslensku þjóðfélagi.
Sósíalistar og aðrir vinstrimenn skyldu
forðast að hlaupa hver í sína áttina út af
minniháttar ágreiningi.
Það Jrarf fleiri sósíalista, fleiri vinstri
menn, sem skilja hvað er í húfi og eru
reiðubúnir til að stuðla að uppbyggingu
Alþýðubandalagsins sem voldugrar
stjórnmálahreyfingar, sem íslensk verka-
lýðssamújk Jrurfa á að halda, sem íslenskt
þjóðfrelsi Jnarf á að halda.
Hætta á innrás auðhringa og auknum
áhrifum bandaríska hernámsliðsins
Hægri öflin, fjármálafurstar og at-
vinnurekendastéttin innleiddu efnahags-
stefnu á síðasta áratug er Jjjónaði gróða-
öflunum í Sjálfstæðisflokknum. Þá voru
kjarasamningar ógiltir, erlendu fjár-
magni hleypt inn í landið og í lok við-
reisnar áttu Sjálfstæðisflokkur og Aljrýðu-
flokkur sök á atvinnuleysi og landflótta.
Aljrýðuf'lokkurinn veitti Sjálfstæðis-
flokknum þá fið til árása á lífskjörin.
Framsókn hefur tekið við hlutverki Al-
þýðuflokksins og stendur nú að „við-
reisnarstefnu“. Sjálfstæðisflokkurinn
stefnir leynt og ljóst að Jrví, að festa
hægri stjórnarstefnu í sessi, ýmist með
stuðningi Aljiýðuflokksins eða Framsókn-
arflokksins. Með Sjálfstæðisflokknnm
fylgir Framsóknarflokkurinn frarn sjón-
armiðunr herstöðvasinna og þjónar fyrst
°g fremst hagsmunum einkagróðans.
Framsóknarflokkurinn getur því með
engum rétti talist flokkur félagshyggiu-
fólks.
Alþýðuflokkurinn lýsir fylgi við inn-
rás erlendra auðhringa og reynslan af
starfi lians hefur sýnt að verkalýðshreyf-
ingin getur ekki treyst honum. Því munu
sjálfstæðismenn reiða sig á tækifærissinn-
aðan miðflokk eða reikulan Aljrýðuflokk
til óvinsælustu aðgerðanna.
Við blasir hættan á stórfelldri innrás
fjölþjóðahringa og erlends fjármagns í
íslensk peningamál er leiða mundi til
mikillrar kjaraskerðingar og verða ís-
lensku sjálfstæði skeinuhætt.
Jafnframt er leitað efnahagslegra leiða
til að auka áhrif bandaríska hernáms-
liðsins og tryggja stöðu þess. Það er setið
á svikráðum við sjálfstæði Jrjóðarinnar.
Gegn þessari hættu verða vinstri öflin
að rísa. Verkalýðshreyfing Joarf að reka
alla sundrung á dyr og efla sterkan sósíal-
ískan verkalýðsflokk.
AlþýSubandalagið er einingarafl til
vinstri.
Alþýoubandalagið er einingaraflið til
vinstri í íslenskum stjórnmálum. Alþýðu-
bandalagið er sósíalískur verkalýðsflokk-
ur sem berst fyrir:
Forræði vinnandi fólks yfir atvinnu-
tækjunum.
Félagslegum umbótum og auknum
lýðræðislegum réttindum.
Brottför hersins og úrsögn úr Nato.
Frjálsu jafnréttisþjóðfélagi.
Alþýðubandalagið er það einingarafl,
sem íslensk alþýða þarf að efla — fremur
nú en nokkru sinni fyrr.
221