Réttur - 01.07.1978, Síða 11
ANASTAS I.
MIKOJAN
LÁTINN
Anastas Mikójan, einn af snjöllustu leið-
togum Kommúnistaflokks Sovétríkjanna,
dó í október s.l. Þarmeð er liðinn einn
besti baráttumaðurinn í uppreisnar-
starfinu, sem var undanfari byltingarinn-
ar, og einhver framsýnasti foringi í hinu
risavaxna uppbyggingarstarfi Sovétþjóð-
anna.
Mikójan var Armeni að þjóðerni,
fæddur 1895 og ólst upp í því landi, sem
á einhverja elstu menningarerfð allra
Evrópulanda. í Kákasus bjó alþýðan um
síðustu aldamót við hræðilega fátækt og
kúgun, því gjöfulustu auðlindirnar þar,
olíusjóðina miklu, átti erlendur olíu-
hringur (ensk-fransk-rússneskur að mestu,
Shell átti 12% hlutafjárins, Nobel-klíkan
19% o. s. frv.), er arðrændi land og þjóð
miskunnarlaust.
Mikójan gekk { bolshevikkaflokkinn
1915, starfaði mest í Tiflis og Baku. Verð-
ur þar einn af leiðtogum byltingarinnar
1917.
Þá skall hurð nærri hælum að hann
yrði drepinn, því þegar þeirri stjórn
verkamannaráðanna í Baku, sem þeir
höfðu myndað í mars, 1918, var steypt,
- varð að víkja fyrir ofureflinu, - í júlí-
mánuði, voru um 30 af leiðtogunum
(„Kommisserunum") handteknir og
dæmdir til dauða, þ. á m. Mikójan. En
þeim tókst að flýja á litlu skipi, en urðu
kolalausir og lentu til Krasnovodsk, þar
sem Englendingar og andbyltingarmenn
réðu. Ákváðu þeir að skjóta „Kommiss-
arana“ og voru 26 Jreirra myrtir á þenn-
an hátt, meiningin var að Mikojan biði
Jrar bana, en honum tókst að sleppa lífs
af hreinni tilviljun. Hélt hann áfram
byltingarbaráttnnni uns sigur var unn-
inn.
155