Réttur - 01.07.1978, Síða 12
Mikójan var kosinn í miðstjórn ilokks-
ins 1922 og 1934 varð hann varamaður í
framkvæmdanefndinni og síðan lengst af
ævinnar í forustu flokksins. Hann varð
1926 viðskiptamálaráðherra og skipaði
lengst af hinar mikilvægustu stöður, er
vörðuðu Iiina risavöxnu sköpun stóriðju,
er gerbreyttu því gamla Rússlandi í ann-
að mesta stóriðjuland heims.
Talið er að Mikójan hafi ef til vill átt
höfuðþáttinn í því að á 20. flokksþingi
Sovéska Kommúnistaflokksins var ger-
breytt um stefnu, hvað snertir þau ægi-
legu afbrot, er Stalin átti höfuðorsök á, -
og að Krustjoff liafi ekki síst vegna áhrifa
hans flutt „leyniræðu" þá hina sögulegu,
sem alþekkt er orðin.
Um nokkurt skeið, áður en Mikójan
dró sig alveg í hlé fyrir aldurs sakir, var
hann forseti Sovétríkjanna - og er óhætt
að segja að hann hafi af öllum þeim, er
lionum kynntust utanlands sem innan,
verið metinn sem einn af mestu mönnum
jiessa sögulega umbreytingaskeiðs, sem
hann var virkur þátttakandi í - og jiað í
broddi fylkingar - í næstum hálfa öld.
*
Ég átti nokkurt tal við Mikójan haust-
ið 1945, er við Pétur Benediktsson, Jrá
sendiherra íslands í Moskvu, vorum send-
ir af nýsköpunarstjórninni til Finnlands,
Sovétríkjanna, Póllands og Tjékkoslóva-
kíu til jness að koma á samskiptum við
jæssi lönd að stríði loknu. Er það tví-
mælalaust fyrst og fremst skilningi Mi-
kojans að þakka að Ji>á hófust og stóðu
1946 og 1947 mikilvæg viðskipti milli fs-
lands og Sovétríkjanna, sem Bandaríkin
að vísu í krafti Marshallsamningsins létu
íslensku ríkisstjórnina stöðva 1948, en
Bjarni Benediktsson tók aftur upp, er
Bretar settu fisksölubannið á okkur 1953
156