Réttur - 01.07.1978, Side 25
ir hjúkrunarkona, sem enn lifir. Höfðn
þau gifst nokkru eftir heimkomu Hall-
gríms. Gekk hún með fyrsta, og eina, barn
þeirra, er Hallgrímur var fluttur burt án
þess að fá að kveðja hana. Fæddist þeim
dóttir, Halla, 15. júní 1941 og er Hall-
gn'mur skömmu síðar var fluttur til
skyndirannsóknar í röntgendeildina í
kjallara Landspítalans, bað hann að fá að
sjá dóttur sína og konu, er lágu á fæðing-
ardeildinni, sem var þá á efstu hæð Land-
spítalans. En fangelsisyfirvöldin neit-
uðu.
Manni verður oft á að hugsa: Það er
ekki djúpt á fasismann á íslandi, ef menn
sem hatursfyllstir eru og af ofstæki
hrenna gegn kommúnisma, fengju völdin
1 landinu algerlega í sínar hendur.
Hallgrímur var 11 mánuði í fangelsinu,
saetti illri meðferð, var stundum mánuð-
Ulu saman lokaður inni í þröngum klefa
°g algerlega einangraður frá umheimin-
Ulu. Oddný kona hans fékk aðeins að
heimsækja hann á sunnudögum og varð,
er hann var lokaður inni, að tala við
hann út um glugga. Sökurn hins illa að-
húnaðar veiktist Hallgrímur og lá sjúkur
um tíma eftir að liann loks kom út. —
Áerkalýðurinn hafði hins vegar nreð fjár-
sófnun handa föngunum sýnt áþreifan-
^ega samúðina með þeim. Einnig varð
Oddný mikillar hjálpar aðnjótandi frá
hjarneyju, systur Hallgríms og manni
hennar.
Hallgrímur naut hins vegar skamman
únra samvistarinnar við konu sína og
híöllu dóttur sína, sem nú er gift kona,
þrig
gja barna móðir, eftir að hann náði
Ser eftir veikindin. Árið 1942 var hið
’óikla baráttu- og sigurár íslenska verka-
iýðsins og flokks hans, Sósíalistaflokksins,
°g uin haustið tók Hallgrímur sér ferð á
Björn Guðmundsson.
hendur um landið í þágu hreyfingarinn-
ar. Tók hann sér þá á Norð-austurlandi
far með línuveiðaranum Sæborgu í nóv-
ember 1942. En það skip hvarf, hefur lík-
lega annaðhvort rekist á tundurdufl eða
verið skotið niður af kafbát. Fórust með
því 7 manns og var Hallgrímur einn
þeirra. Lét hann þannig lífið 32 ára að
aldri. — 10. des. 1942 birtust eftirmæli
eftir hann í Þjóðviljanum, rituð af Brynj-
ólfi, Eggert og undirrituðum.
Hreysti Hallgríms minnir á margt úr
Islendingasögunum, en harmleikurinn í
lífi hans á örlög margra þeirra þýsku and-
fasista, er með honum börðust á Spáni,
svo sem á örlög Hans Beimlers, er af mik-
169