Réttur - 01.07.1978, Blaðsíða 28
Carl Ernstadt lengst til vinstri.
lýðræðissinna hafði sýnt og sannað sinn
andlega mátt á Spáni, svo eigi varð um
villst. Tugir þúsunda verkamanna, rit-
höfunda og annarra hugsjónamanna voru
reiðubúnir að fórna lífi og heilsu fyrir
hugsjón og veruleika lýðræðisins. Jafnvel
menn, nýsloppnir úr víti fangabúðanna
í Þýskalandi Hitlers, víluðu ekki fyrir
sér að fara beint til spönsku frelsisvíg-
stciðvanna og deyja þar fyrir hugsjónir
frelsisins. Eldmóður og fórnarhugur al-
þýðuhersveitanna á Spáni kveikti eld í
hjörtum manna um víða veröld, þegar
hersveitir fasismanns voru að slökkva
frelsið í hverju landinu á fætur öðru með
stuðningi svikulla auðmannastétta í
Frakklandi og Englandi.
En harmleikur Spánarstyrjaldarinnar
sýndi og hver lífsnauðsyn sósíalistum og
öðrum lýðræðissinnum er að líta raun-
sætt, jafnvel kaldrifjað, á hvaða vald það
var, sem úrslitum réði í viðureign frelsis-
ins við fasismann: vopnavaldið.
Bresku og frönsku ríkisstjórnirnar
brutu alþjóðabefð með jrví að neita að
selja hinni löglegu ríkisstjórn Spánar
vopn. Það voru einungis Sovétríkin seni
sendu hinni stríðandi lýðræðisstjórn
vopn. Og í desember 1938 var hlutfallið
milli fasistanna og lýðræðissinnanna slíkt,
er 300.000 ítalskra, þýskra og Franco-her-
manna hófu sókn í Kataloníu gegn lýð-
ræðishernum, er taldi 100.000 hermenn
með 57.000 byssur, og gegn hverri flug-
vél lýðveldisins voru 15—20 fasistískar,
hlutfall skriðdreka var 1:35, hlutfall vél-
byssa 1:15 og hlutfall stórskotaliðs 1:30.
Það var vopnavaldið sem úrslitum réði-
Þeirri reynslu gleymdu sósíalistar og lýð-
ræðissinnar ekki, frekar en hinu að auð-
mannastéttum má aldrei trúa fyrir frelsi
og föðurlandi.
*
Sorgarleikurinn, sem gerðist á Spáni
lyrir 40 árum, er vopnavald auðvalds
myrti lýðræði og frelsi fólksins, gerist enn
þann dag í dag. í Nicaragúa berst lýðræð-
ið fyrir lífi sínu og frelsi gegn blóði drif-
inni harðstjórn Somoza-ættarinnar, sem
myrðir fólkið og brennir borgirnar —
með bandarískum vopnum. — í íran
kæfir blóð-keisarinn kröfur fólksins uin
frelsi í blóði, lætur bandarískum sprengj-
um rigna á borg eftir borg, jregar fólkið
rís upp. — í Suður-Afríku og Rliodesíu er
viðlialdið harðstjórn hvítra ofstækisauð-
manna yfir margföldum meirihluta svert-
ingja, af því 70% auðmagnsins eru í eigu
bandarískra, enskra, franskra og þýskra
auðhringa, sem líka láta vopnin í té.
Lýðræðið berst enn í dag fyrir lífi sínu
172