Réttur - 01.07.1978, Qupperneq 55
olíu í banni Sameinuðu þjóðanna til að
lieyja stríðið gegn lýðræði og frelsi svert-
ingjanna.
Breski verkalýðurinn Jrarf að ráða, á
stjórnmálasviðinu, niðurlögum eigin
auðhringa, áður en hann fær hækkað
kaup sitt, og þá myndi hann um leið að-
stoða við að frelsa aðra kúgaða.
Suður-Afríka
í Rétti 1976, bls. 119—20, var skýrt
nokkuð frá hinni miklu fjárfestingu
enskra, bandarískra, þýskra og annarra
auðfélaga í Suður-Alríku og hvernig
stjórnir þessara landa eru að reyna að
sveigja stefnu sína — og fasistastjórnar-
innar þar — til þess að varðveita hinn
mikla auð útlendinga í landinu.
Síðan þetta var skrifað hel'ur erlenda
fjárfestingin enn vaxið, og Bandaríkja-
stjórn er nú auðsjáanlega að reyna sitt
ýtrasta til að vernda yfirráð hvíta minni-
hlutans og hindra meirihluta þjóðanna í
Suður-Alríku og Rhodesíu í að ná fullum
mannréttindum.
40% af allri fjárfestingu Bandaríkja-
auðvaldsins í Afríku er í Suður-Afríku. í
árslok 1976 var þessi fjárfesting í allri
Afríku 4467 milljónir dollara, þar af
1665 í Suður-Afríku. (Var 700 milljónir
1969).
Bretar eiga 60% af allri fjárfestingu
útlendinga í Suður-Afríku. hessvegna er
breska stjórnin á móti relsiaðgerðum
gegn fasistunum!
Verslun Bandaríkjanna við Suður-
Alríku er 14% af allri verslun Suður-
Afríku, viðskipti Vestur-Þjóðverja 12%,
Japans 10%. I Suður-Afríku starfa 630
bresk fyrirtæki, 494 bandarísk, 132 vest-
ur-þýsk, 85 frönsk og 150 i'rá öðrum stór-
iðjulöndum kapitalismans, þar af 70 jap-
önsk. Tveir jrriðju hlutabréfanna í bönk-
um Suður-Afríku eru á breskum hönd-
um, 60% bílanna, sem framleiddir eru í
jressu fasistalandi, eru framleiddir af
General Motors, Ford og Chrysler.
Þannig mætti lengi telja. Barclays
Bank, útibúið í Suður-Afríku, telur fjár-
festingu jrar einhverja bestu í heimi.
Og hvað kostar það þjóðina að auðvald-
ið, útlent og innlent, græðir svona vel?
Helmingurinn af öllum börnum
svertingja undir 5 ára aldri deyja úr
sulti. Meir en 350.000 persónur eru fang-
elsaðar árlega vegna „apartheid“-laganna.
Suður-Afríka hefur heimsmet í dauða-
dómum. Stúdentar, sem mótmæla kúg-
uninni, eru miskunnarlaust skotnir af
lögreglunni: yfir 1000 biðu þannig bana
á síðustu 18 mánuðum, miðað við árs-
byrjun 1977. Pólitískir fangar eru vægð-
arlaust myrtir, píndir til bana í yfirheyrsl-
um eða hent út um glugga: drepnir á
jrann hátt og kallað sjálfsmorð í lögreglu-
skýrslum.
Jafnvel þeir sem boða friðsamlegar að-
gerðir, eins og Steve Biko, eru drepnir i
fangaklefunum og ekki hlífst við að
banna hákristnar stofnanir, sem leyfa sér
að gagnrýna yfirvöldin.
199