Réttur - 01.01.1980, Side 26
HVAÐ GERÐIST
I AFGHANISTAN?
Það er ekki auðvelt að greiða úr allri þeirri málaflækju, sem orðið hefur í sambandi
við atburðina í Afghanistan, en rétt er að gera tilraun til að kynna aðstæður allar og
atburði svo sem verða má. Afghanistan er háfjallaland inn í miðri Asíu, 647.497 fer-
kílómetrar að stærð, fjórir fimmtu hlutar landsins þaktir háum fjöllum og hásléttum,
dalir lítt frjósamir. íbúatalan er 15'/2 milljón (1979) og kennir þar margra þjóðflokka og
ættflokka: Pashtanar eru um 50%, Tadshikar um 30%, Usbekar, Turkmenar og
Kirgisar um 10%, Hasarar af Mongólakyni um 8% og þaðan af smærri hópar. Trú-
arbrögð meirihlutans er Múhameðstrú, „sunnita“-trúflokkurinn. 12% íbúanna býr í
bæjum. Tungumálin eru Pashto og Dari, sem síðan 1936 eru jafn rétthá. Landbúnað-
ur er aðalatvinnuvegur, kvikfjárræktin aðalatriðið og leggur til meira en helming út-
flutningsins.
Sömu ættflokkar og þjóðflokkar og
byggja Afghanistan eru og í löndunum í
kring og veldur það löngum erjum og
átökum.
Nti hefur þetta land allt í einu orðið
að miklum brennipunkti í heimsmálun-
um. Veldur þar ekki livað síst að Pakist-
an, sem nú er undir einræðisstjórn hers-
höfðingja þess, er lét myrða Ali Butto,
löngum æðsta mann landsins, gerist verk-
færi CIA og Bandaríkjaauðvaldsins, en
áður hafði Zia-ul-Haq, einveldisherra
Pakistan, átt í miklum deilum við Banda-
ríkin, ekki síst af því hann var að reyna
að koma sér upp kjarnorkusprengjum úr
efni því, sem þau höfðu látið honum í
té með því skilyrði, að ekki yrðu unnin
úr því vopn.
Pakistan er byggt Múhameðstrúar-
mönnum og að nokkru þjóðflokkum
skyldum þeim, er byggja Afghanistan.
i’að eru því hæg heimatök, ef vilji er til
að koma deilum af stað, og einræðisstjórn.
in í Pakistan lítur auðvitað róttæka al-
])ýðuhreyfingu í Afghanistan óhýru auga.
26