Réttur - 01.01.1980, Side 40
Hvergi höfði að að halla.
sjónaást snertir. (Laun Chavez eru 240
ísl. kr. á viku).
Um 10 milljónir manna í Bandaríkj-
unum svelta. Sulturinn knýr marga til
að borða moldina. Rannsóknarnefnd,
sem öldungarráðið setti, sannaði að
næstum helmingur svertingjakvenna í
Alabama borðar mold. — og fátæklingar
Bandaríkjanna eru dreifðir um öll ríkin,
minnihlutahópar, sem sjá auðæfin í
kringum sig, en megna sjaldnast að rísa
upp — ólíkt því sem fátæklingar þriðja
heimsins gera, því þeir eru yfirgnæfandi
meirihluti í landi sínu og læra að standa
saman og berjast saman. „Þess vegna er
fátæktin grimmilegri og sálarlega meir
eyðileggjandi en nokkurs staðar annars
staðar í heiminum," segir höfundur. Hún
skapar víðast hvar algert vonleysi.
Margir íslendingar kannast við Harlem,
negrahverfið í New York. En Harlem er
ekki eina ,,ghettóið“ í New York — og
ekki það versta. I Bronx-hluta New York-
borgar eru hverfi þar sem 9 af hverjum
10 manns deyja óeðlilegum dauða: annað
livort úr hungri, ofneyslu heroins, rottu-
biti (ungbörn) eða eru myrtir. í Browns-
ville sá ég tvö morð og heyrði um fjögur
önnur sama daginn, síðan hef ég ekki
komið þangað," segir höfundur og.
Það væri freistandi að þýða alla þá lýs-
ingu, sem höfundur gefur (t.d. á bls. 172)
af lífskjörum gamla fólksins, sem fær svo
lítinn ellilífeyri að það sveltur, — en
raunar þarf leyfi útgefenda til slíks og
það höfum við ekki. Getum aðeins bent
á þessa stórmerku bók, sem væri ekki að-
eins þess verð að koma út á íslensku,
heldur og að myndir úr henni væru sýnd-
ar í sjónvarpinu tímum saman, svo menn
sæju hvernig ráðandi stéttir Bandaríkj-
anna búa að þeim, sem eru minnimáttar.
1% Bandaríkjamanna eiga yfir 30% af
öllum eignum, sem til eru í Bandaríkjun-
um.
Það er þessi örfámenna ránsklika, sem
heimtar að ráða í heiminum í krafti auðs
síns og atomvopna, — sveltir gamla fólk-
ið og börnin, arðrænir litaða verkamenn
vægðarlaust — og blekkir eða hótar fjöld-
anum til fylgis við sig. Þjóðfélagskerfi
þessarar valdaklíku er orsök þeirra hörm-
unga, er þessi ágæta bók lýsir.
40