Réttur - 01.01.1980, Síða 61
Nkomo
ugg í Suður-Afríku og deilur innan
drottnandi llokks þar um hvort bregðast
skuli við af viti og hófsemi, er Suður-
Afríka sér sig umkringda þjóðfrjálsum
löndum, og byrja að slaka á kynþáttakúg-
uninni — eða hvort haldið sktdi áfram
ofstæki og fasistískri kúgun meirihluta
þjóðarinnar, sem hingað til.
Fangelsisbyggingar
í U.S.A.
Það snart marga þátttakendur á vetrar-
Olympíuleikjunum í Lake Placid illa að
„olympiska þorpið“, sem byggt var fyrir
gestina sjö mílum vestan við þorpið Ray
lirook, skyldi vera skipulagt sem framtíð-
arfangelsi. Jafnvel líka í Bandaríkjunum
heyrðust raddir um að þetta væri ekki
beint í samræmi við hinn Olympiska
anda. Afsökun staðaryfirvaldanna var að
ella hefðu þau ekki fengið þann fjárstyrk
frá alríkinu, sem til þurfti.
Bandaríkjastjórn fyrirhugar gífurlegar
byggingar fangelsa á næstu fimm árum.
Hjá alríkisyfirvöldunum er gert ráð fyrir
að byggja 1000 ný fangelsi. Og sumum
finnst það jafnvel of lítið: tala hegningar-
fanga muni hafa vaxið um a.m.k. 300.000
á þeim tíma. Hve gífurleg fangelsisbygg-
ingaáætlunin er hjá alríkisstjórninni, sést
best á því að 1979 voru aðeins 60 slík
og níu árum áður bara 40.
En í alríkisfangelsunum situr aðeins
lítill hluti fanganna. Flestir eru þeir í yf-
irfylltum fangelsum hinna einstöku ríkja
og bæjarfélaga,
Alls eru meir en hálf milljón Banda-
ríkjamanna í fangelsum, talan hefur tvö-
faldast á nokkrum árum. Og lengd tím-
ans, sem þessir fangar skulu sitja inni, er
einnig alltaf að vaxa.
Minnihlutahóparnir verða þarna harð-
ast úti: svertingjar, Puorto-Rico-búar,
Mexikanar o. s. frv. Hlutfall þeirra af
föngum í alríkisfangelsunum var 1970
27%, en er nú 40%.
Höfuðorsökin til hins ískyggilega vaxt-
ar fangatölunnar nú og í framtíðinni er,
samkvæmt frásögn sjálfs forstjóra fangels-
isyfirvaldanna, Carlson, atvinnuleysið.
„Því meira sem atvinnuleysið er því fleiri
fangelsisdómar, á því er enginn efi,“ —
segir hann. — Og svar valdhalanna við
vaxancli atvinnuleysi á næstu árum er að
veita fé til nýrra fangelsa, betur vopnaðr-
ar og fjölmennari lögreglu og láta dæma
í lengri tugthiisvist. - En félagsumbæt-
urnar lá að sitja á hakanum í þessu rík-
asta landi veraldar.
61