Réttur - 01.01.1981, Blaðsíða 4
RooseveK
aukinn herskipakost til þessara árása.
Jafnframt undirbýr Reagan ráðstafanir til
að gera Þrándheim i Noregi að miðstöð
slikra árása og gerir ráðstafanir til þess
að geta í skyndi lokað dönsku sundunum
og þarmeð hindrað siglingar sovéska
Eystrasaltsflotans.
Voru ekki einhverjir hér heima einu
sinni að tala um Bandaríkin sem vernd-
ara lýðræðisins og Nato sem ,,varnar-
bandalag”?
Það er greinilegt að nú er aftur upp
tekin sú vitstola pólitík Bandaríkjastjórn-
ar að stefna að heimsyfirráðum, — aftur-
gangan frá 1946—9, er sú stjórn hugði
sig ógna allri veröld til undirgefni í krafti
einokunar á múgmorðsvopni kjarnorku-
sprengjunnar.
Samhliða þessum gífurlegu fjárfram-
lögum til vígbúnaðar Bandaríkjanna
sjálfra, á svo að ausa miljörðum dollara í
hernaðaraðstoð til allra þeirra einræðis-
herra, böðla og fasista, sem standa með
Bandaríkjunum víða um heim.
Á sama tíma eru svo skorin niður ýms
fjárframlög til bágstaddra í Bandaríkj-
unum sjálfum, þvi það verða menn að
muna að þótt Bandaríkjaþjóðin sé
aðeins 5% jarðarbúa, drotnar hún á einn
eða annan máta yfir allt að 60% auðsins
á jörðinni.
En þeim auð er ægilega misskipt. Á
meðan auðugustu einokunarhringir
heims stórgræða á vígbúnaðinum, þá
verða miljónir manna i Bandaríkjunum
að búa við sárustu neyð vegna atvinnu-
leysis, sjúkdóma og elli, en kynþátta-
hleypidómarnir auka á misréttið. Þannig
er atvinnuleysið venjulega tvöfalt meira
hjá negrum, Puerto-Ríko-mönnum og
slíkum en hjá hvítum mönnum, svo ekki
sé talað um meðferðina á lndiánum, er
áttu þetta land, eða Mexico-búum, er
þangað flykkjast oft til vertíðaratvinnu.
(Bók Michael Harringtons: ,,The other
Americans. Poverty in the United States”,
segir vel frá þeirri neyð sem fátækir
Bandaríkjamenn, 40—50 miljónir, verða
að búa við. Sú bók var gefin út í Bret-
landi sem ,,Penguin”-bók 1963 og hefur
Réttur áður sagt frá henni.)
Það er ógæfa mannkyns að ekki tókst
að hindra kjarnorkukapphlaupið strax
frá upphafi eftir múgmorð Bandaríkja-
hers í Hiroshima 1945. Bestu menn
Bandaríkjanna eins og Stimson, hermála-
ráðherra Roosevelts, vildu þá skýra
4